Palme og Pedro Hjálmtýr Heiðdal skrifar 10. mars 2026 11:17 Aðeins tvö nöfn koma mér í hug þegar ég leita að evrópskum stjórnmálaforingjum sem hafa sagt: Hingað og ekki lengra - virðum alþjóðalög og stöðvum stríð. Þessir tveir menn eru Olof Palme fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar og Pedro Sánchez núverandi forsætisráðherra Spánar. Palme snérist gegn árásarstríði Bandaríkjanna í Víetnam og Sánchez lýsir andstöðu gegn stríði og brotum á alþjóðalögum, hann neitar bandaríska hernum um aðstöðu á Spáni. Flestir aðrir leiðtogar Evrópu hafa svikið öll sín orð og allt sitt erindi á vettvangi stjórnmálanna. Þess vegna ríkir nú upplausnarástand í heimsmálum, stríðsóðir leiðtogar vaða yfir lönd og eira engu. Eftir Palestínu, Venesúela og Íran verður ráðist á Kúbu og yfirgangurinn mun ekki hætta. Merz kanslari Þýskalands, sem er einarður stuðningsmaður þjóðarmorðsins í Palestínu, segir að Íran eigi ekki að njóta verndar alþjóðalaga. Macron Frakklandsforseti styður brot Bandaríkjanna og Ísraels á alþjóðalögum, einnig Starmer í Bretlandi og Giorgia Meloni á Ítalíu. Í leiðara Morgunblaðsins 4. mars sl. eru Evrópuleiðtogar sagðir ekki nógu duglegir við að styðja lögbrot og morðhrinu Bandaríkjanna og Ísraels: „Aftur er merkilegt hve mörg Evrópuríki hafa reynst afskaplega dræm í sínum viðbrögðum, tönnlast á því að draga þurfi úr spennu, taka upp viðræður á ný og virða alþjóðlög, hvað sem það nú þýðir.“ Já - hvað sem það nú þýðir! Evrópuleiðtogar, sem styðja þjóðarmorðið í Palestínu og ólöglegt stríð gegn Íran, lýsa Rússa óalandi og óferjandi en stunda sjálfir eða styðja hinn sama glæp og Pútín fremur í Úkraínu. Gleði íslenska utanríkisráðherrans yfir árásinni á Íran rímar illa við sífellt tal hennar um mikilvægi alþjóðalaga og nauðsyn þeirra fyrir smáþjóðir. Hún fagnar aðgerð sem er brot á alþjóðalögum - er enginn í ráðuneytinu eða ríkisstjórninni sem getur bent Þorgerði Katrínu á hversu hallærislegt þetta er? Hver er afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar til brota Bandaríkjanna og Ísraels gegn þeim grundvelli sem alþjóðasamskipti eiga að hvíla á - ef marka má öll þau orð sem er að finna í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna, Genfarsáttmálanum, Sáttmálanum gegn þjóðarmorði ofl. plöggum sem hafa litið dagsins ljós frá því að heimsstyrjöldinni 1939 - 1945 lauk. Þögn er sama og samþykki. (Ég skrifa ekki „seinni heimsstyrjöldin“ því sú þriðja gæti verið í uppsiglingu.) Valdataka Trumps og fasistaklíku hans í öflugasta herveldi veraldarsögunnar er vendipunktur. Lífshættir Vesturlandabúa í áratugi gætu heyrt sögunni til. Lýðræði og upplýst frjálslynt þjóðfélag sætir nú árásum utan frá og innanfrá. Stjórnmálamenn í Bandaríkjunum eru upp til hópa fjármagnaðir af síoniskum hagsmunaklíkum og milljaðamæringjum með ítök um allan heim - viðhald lýðræðis er ekki á þeirra aðgerðalista. Hér á landi er í uppsiglingu flokkur sem í æ ríkara mæli sækir sína hugmyndafræði í skemmu þessara eyðileggjandi afla. Ungt fólk, sem hefur enga þekkingu eða sýn á sögu þjóðanna og tilurð lýðræðis, virðist vera tilbúið að styðja öfl sem munu eyðileggja framtíð þess. Alþýða manna um allan heim vill búa við frið, frelsi og öryggi. Það fæst ekki með sinnuleysi og fávisku. Í lýðræðisríkjum er atkvæðið vopnið sem gæti bjargða framtíðinni. Víða er það ekki í boði og krefst baráttu með öðrum ráðum til að steypa einræðisherrum af stalli. Það er enn mögulegt að velja. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson Skoðun Skoðun Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun