Viljum við ekki öruggt vatn? Kjartan Kjartansson skrifar 6. mars 2026 17:32 Nýleg æfing Veitna og Almannavarna leiddi í ljós að lítið þarf að bera út af til að höfuborgarsvæðið verði neysluvatnslaust í margar vikur. Slíkt myndi hafa gífurleg áhrif á heimili, heilbrigðisstofnanir og matvælafyrirtæki og valda samfélaginu miklum skaða. Þetta sýnir okkur að jafnvel þótt stjórnvöld hafi byggt upp öflugt kerfi fyrir vernd vatnsbóla þá þarf sífellt að endurskoða og efla kerfið. Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum heilbrigðiseftirlitsins, sem í tilfelli vatnsbóla höfuðborgarsvæðisins byggir á nánu samstarfi sveitarfélaganna. Heilbrigðiseftirlitið stendur þannig vörð um lífsnauðsynlega innviði með viðvarandi eftirliti og nánu samstarfi við veitufyrirtæki og viðbragðsaðila. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur Manni rennur því kalt vatn milli skinns og hörunds þegar maður hugsar til þess að Jóhann Páll umhverfisráðherra hyggist eyðileggja þessa vatnsvernd með frumvarpi sínu um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið. Frumvarp hans myndi þannig ekki bara ógna öryggi barna, heldur líka tefla öryggi neysluvatns fyrir samfélagið í tvísýnu. Niðurrif innviða á stríðstímum Fyrir stuttu var haldin norræn ráðstefna um matvælaeftirlit og það kom skýrt fram að frændfólk okkar á meginlandinu er í mikilli viðbragsstöðu gagnvart fjölþættum ógnum og skemmdarverkum. Allar stórtækar kerfisbreytingar eru komnar á ís og í staðinn er allt kapp lagt á að undirbúa viðbragð við hvers konar áföllum í matvælakeðjunni og ekki síst í vatnsbólum. Sama vísa var kveðin á ráðstefnunni Verndum vatnið þar sem norðmenn lýstu því hvernig vatnsbólin þeirra njóta nú sömu verndar og hernaðarlegir innviðir. Heilbrigðiseftirlit er lífsnauðsynlegt Samfélagið á rétt á því að neysluvatnið okkar sé öruggt og sérstaklega á víðsjárverðum tímum sem þessum. Ríkisstjórnin ber þar mikla ábyrgð og það sjá það allir sem hafa kynnt sér málið að frumvarp Jóhanns Páls og umhverfisráðuneytisins um að afleggja heilbrigðiseftirlitið einkennist af fúski og kæruleysi. Í stað þess að brjóta upp kerfið má vel aðlaga það og bæta án þess að fara í algera uppstokkun. Öruggast er að halda áfram að byggja upp heilbrigðiseftirlitið skref fyrir skref eins og hefur þegar verið gert í rúma öld. Þannig má með varfærni og vönduðum vinnubrögðum tryggja meiri fagmennsku og skilvirkari ferla í eftirlitskerfinu, jafnvel þegar hætta steðjar að í heimsmálunum. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vatn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar