Getum við öryrkjar siglt þjóðarskútinni í strand? Þorbjörn V. Jóhannsson skrifar 6. mars 2026 16:31 Ég er öryrki. Ég kaus ekki það hlutskipti. Veikindi, bráðahvítblæði sem ég fékk árið 2018 og í kjölfarið nýjar stofnfrumur eða mergskipti sem sumir kalla, gerðu það að verkum að ég hef ekki getað unnið síðan og mun eflaust ekki gera, því miður. Þetta er ekki valkostur hjá mér. Ég var lögreglumaður í 30 ár. Laun lögreglumanna eru/voru ekki há þó þau teljist mögulega ágæt í dag. Það var samt hátt fallið úr launum lögreglumanns að fara á örorkubætur. Innkoman lækkaði mikið en lánin, heimilisrekstur, matarinnkaup osfrv.. ekki. Það er því úr talsvert minni fjárhagslegri innkomu að ráða. Ég fylgist með verkföllum, kjaraviðræðum, launahækkunum, verðlagshækkunum í þjóðfélaginu og ég fylgist með bankareikningnum mínum líka en þar hækkar aldrei innkoman á meðan aðrir fá launahækkanir. Við öryrkjar getum ekki farið í verkfall. Við höfum engin vopn til að berjast með til að fá hærri bætur til að geta fylgt amk verðlagsþróun. Sumir vilja meina að það sé svo notalegt og verði enn notalegra að vera á bótum ef það fer í gegnum þingið að binda bætur við launavísitölu. Ég get ekki tekið undir slíkt, það er ekki valkostur okkar öryrkja að vera í þessari stöðu, ef einhverjir eru að nýta sér bæturnar á fölskum forsendum þá er eitthvað að kerfinu. Það er merkilegt að heyra umræðuna um þetta núna, fólk sem er gjarnan á mjög góðum launum sér þessu allt til foráttu þ.e. launavísitölu tengingunni. Það er auðvelt að segja þetta verandi ekki í þessari stöðu sem við öryrkjar erum í. Þeir sem mæla þessu mót segja gjarnan í lokin að þau vilji jú að við öryrkjar höfum það gott og vilji okkur vel en koma ekki með tillögu að úrbótum. Ég trúi ekki að þetta fari með þjóðfélagið á hausinn, það væri mjög merkilegt að loksins þegar rétta á hlut okkar bótaþega að það eitt sigli þjóðarskútunni í strand. Það er líka merkilegt að Læknafélg Íslands setji sig á móti þessu þar sem slíkt geti ýtt undir ranga hvata og aukið vandamál innan kerfisins. Eigum við sem þurfum að vera á bótum að líða fyrir lélegt kerfi? Er það ekki umrætt kerfi sem þarf að laga og þá mat þeirra lækna sem meta fólk til örorku? Ég styð því tengingu bóta við launavísitölu og vona að þetta komist í gegnum þingið. Höfundur er öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagsmál Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira