Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Orion tannviðgerðir 6. mars 2026 08:52 Orion tannviðgerðir munu fara kynningarferð um landið þar sem starfsemin hér heima og í Búdapest verður kynnt. Þúsundir Íslendinga hafa nýtt sér þjónustu Orion tannviðgerða með góðum árangri undanfarin ár. Stofan býður tannlæknaþjónustu á Íslandi og í Búdapest og hlaut meðal annars viðurkenningu frá Nobel Biocare á síðasta ári. Framundan er kynningarferð um landið þar sem starfsemin hér heima og í Búdapest verður kynnt en ein af lykiláherslum Orion tannviðgerða er persónuleg þjónusta. „
Við höfum gert þetta áður fyrir þremur árum, þá fórum við hringinn og kynntum starfsemina. Nú höfum við stækkað og opnað stofu hér heima og viljum kynna okkur enn betur,“ segir Valþór Sverrisson, einn eigenda og framkvæmdastjóri Orion tannviðgerða „Meðeigandi okkar frá Búdapest verður með okkur á flestum stöðunum þar sem við höldum fyrirlestur og þá verðum við einnig með afsláttarkjör á þjónustunni í tengslum við kynnigarnar,“ segir hann. Fyrsti viðkomustaður verður í Vestmannaeyjum þann 21. apríl, Höfn í Hornafirði þann 22. apríl, þá Neskaupsstaður 23. apríl, Akureyri 24. apríl, Selfoss 25. apríl og Reykjanesbær þann 26. apríl. Þjónustan á Íslandi skiptir sköpum Tannlæknastofan á Íslandi er staðsett í Ármúla 26 og stofan í Búdapest er í miðborginni og er íslenskt starfsfólk á báðum stöðum. Valþór segir það skipta sköpum fyrir viðskiptavini að geta komið í skoðun hér heima þar sem útbúið er meðferðarplan og fólk fær útreiknaðan kostnað. Þá sinnir stofan hér heima eftirliti þegar heim er komið. Hér er hægt að bóka tíma í skoðun hjá þeim. Mikið hagræði er af því að geta notið þjónustu stofunnar í Ármúla 36. „Þetta sparar fólki gríðarlegar upphæðir þar sem ekki þarf að fara í margar ferðir út. Annarsstaðar geta þetta orðið 3 – 4 ferðir í heildina með langri bið á milli en sjúkratryggingastofnun tekur sér allt að 6 vikur í að afgreiða málið, en hjá okkur eru þetta yfirleitt 1 – 2 ferðir þar sem við preppum allt hér heima,“ útskýrir Valþór. „Fólk kemur í þrívíddar myndatöku til okkar í Ármúla, hittir tannlækninn sem það hittir svo einnig úti og fær meðferðarplan sem sýnir bæði kostnað hér heima og úti en við erum eina stofan sem gerir þetta. Einnig má geta þess að við bjóðum upp á greiðsludreifingu fyrir stærri meðferðir.“ Alexander Aron Valtýsson (t.v.) og Valþór Örn Sverrisson eru eigendur Orion tannviðgerða sem reka stofur í Reykjavík og í Búdapest sem sérhæfa sig í tannplöntum og postulínskrónum. Við gerum einnig viðgerðir hér heima og bjóðum mun lægra verð en annars þekkist í tannlækningum á Íslandi. Við getum gert þetta því tannlæknarnir okkar eru einnig meðeigendur stofunnar og vinna þetta eins þægilega og hægt er fyrir kúnnann,“ útskýrir Valþór og hvetur fólk til að kynna sér þjónstuna hér og nýta sér kynningarfyrirlestrana í sínu sveitarfélagi. Orion tannviðgerðir er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands og taka Sjúkratryggingar þátt í allt að 70% af kostnaði vegna almennra tannlækninga á Íslandi og í Ungverjalandi.
Heilsa Tannheilsa Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira