„Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. mars 2026 11:32 Jóhannes Kristinn Bjarnason er spenntur fyrir samkeppninni hjá Víkingi. vísir / lýður valberg Jóhannes Kristinn Bjarnason hafnaði tilboðum frá öðrum félögum til að ganga til liðs við Víking, þar sem hann stefnir á að verða Íslandsmeistari.
Jóhannes samdi við Víking í nokkuð óvæntri heimkomu. Aðeins sjö mánuðir eru liðnir síðan hann fór út í atvinnumennsku til Danmerkur, en í annað sinn er hann snúinn aftur heim til Íslands. „Þetta gekk ekki alveg nógu vel [úti í Danmörku] en ég er bara ógeðslega ánægður að vera kominn hérna í Víking. Spenntur að keyra á þetta með Víkingi, það eru mjög spennandi hlutir að gerast hérna. Verkefnið er spennandi og það heillaði mig mikið að koma hingað, spila og vinna titla, vonandi spila í Evrópu.“ Þetta er í annað sinn sem þú ferð út en kemur aftur heim, er stefnan þá að fara aftur út? „Já það var náttúrulega mjög gaman en fókusinn minn er bara á Víkingi núna. En ef það kemur eitthvað sem mér finnst vera rétt og spennandi þá er ég alltaf tilbúinn að láta reyna á það.“ Jóhannes stefnir á að bæta bikurum í skápinn í Víkinni.vísir / lýður valberg Margir bjuggust þó við því að sjá Jóhannes snúa aftur til uppeldisfélagsins KR, þar sem hann spilaði á síðasta tímabili. Nú eða kjósa að spila undir stjórn frænda síns og nafna, Jóhannes Karls Guðjónssonar, hjá FH. „Ég talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi. Engin spurning.“ Áhugavert verður svo að sjá hvar Jóhannes mun smella inn í ógnarsterkt Víkingsliðið. Þar er enginn skortur á miðjumönnum en Jóhannes getur vissulega leyst aðrar stöður líka. „Ég hef ekki talað mikið um stöður við hann [Sölva Geir Ottesen þjálfara liðsins] en ég er spenntur að koma hingað og þeir spenntir að fá mig. Svo er ég bara tilbúinn að spila allar stöður sem þeir vilja að ég spili.“ Fjallað var um félagaskipti Jóhannes Kristins í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira