Handbolti

Átta ára hark á enda

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Andrea Jacobsen hefur jafnað sig af meiðslunum sem hrjáðu hana í síðasta landsliðsverkefni.
Andrea Jacobsen hefur jafnað sig af meiðslunum sem hrjáðu hana í síðasta landsliðsverkefni. vísir / BJARNI

Landsliðskonan Andrea Jacobsen er á heimleið eftir að hafa spilað síðustu átta ár erlendis. Hún segist komin með nóg af fjárhagslega harkinu sem fylgir því að vera atvinnukona í handbolta.

Andrea hefur gengið frá samningi við ÍBV og mun spila með liðinu í Olís deild kvenna á næsta tímabili.

„Ég er búin að vera úti í átta ár og finnst ég orðin mett af þessum atvinnumannapakka. Ekki það, ég held áfram og framlengi þetta aðeins í Eyjum, en núna fannst mér tími fyrir mig að prófa eitthvað nýtt, vera nær fjölskyldunni og kærastanum. Þessi tímapunktur kemur alltaf á endanum og mér fannst þetta réttur tími fyrir mig núna að snúa heim“ sagði Andrea í viðtali fyrir æfingu íslenska landsliðsins á Ásvöllum í gær.

Klippa: Andrea heil heilsu og á heimleið eftir átta ára hark

„Þetta er bara hark. Öðruvísi en fyrir þær sem spila hérna heima og eru í fullri vinnu með því. Ég hef verið í aðeins öðruvísi pakka og öðruvísi harki, fjárhagslega. Það er pressa á að standa sig vel og við erum að ferðast um alla Evrópu. Ég er búin að prófa þetta allt núna finnst mér, er mjög sátt en fannst tími til að prófa eitthvað nýtt“ bætti hún við.

Þessa stundina er Andrea þó ekki að einbeita sér að félagsliðum heldur með fullan fókus á landsliðinu sem mætir Svartfjallalandi í kvöld og á sunnudag.

„Við verðum eiginlega að fá eitthvað út úr þessum leikjum til að koma okkur áfram og ég held að við séum allar staðráðnar í að sýna betri frammistöðu en við gerðum gegn Svartfjallalandi á síðasta stórmóti.“

Andrea tók ekki þátt í þeim leik eða öðrum á HM. Hún sleit liðband í ökkla skömmu fyrir mót en segist komin aftur á gott skrið.

„Ég er aftur kominn í spilform, verkjalaus og klár í þetta, hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum. Ég fékk góðan tíma eftir stórmótið til að ná mér og hef spilað marga leiki með Blomberg í Þýskalandi. Ég myndi segja að þetta væri bara komið, búið og gleymt“ sagði Andrea um meiðslin sem hrjáðu hana á HM.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×