Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. mars 2026 10:07 Hugi og Simmi hafa sett hlaðvarp sitt í pásu. Hlaðvarpið 70 mínútur í umsjón Sigmars Vilhjálmssonar og Huga Halldórssonar er komið í hlé eftir fjögurra ára göngu. Þeir félagar séu báðir uppteknir en Simmi er jafnframt kominn í nýtt starf sem feli í sér hagsmunaárekstur við hlaðvarpsútgáfu. „
70 mínútur podcast er komið í hlé eftir 4 skemmtileg ár. Hver veit hvað framtíðin ber i skauti sér. Við Hugi Halldórsson þökkum fyrir hlustunina sem var langt yfir því sem við áttum von á,“ skrifaði Sigmar Vilhjálms, betur þekktur sem Simmi Vill, í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum skömmu fyrir miðnætti í gær. Blaðamaður bjallaði í Simma núna í morgun til að forvitnast hvað kæmi til. „Bæði erum við frekar uppteknir menn, þetta var hugsað sem skemmtilegt miðvikudagskvölds hobbí, en síðan er ég farinn að vinna hér hjá Sýn, á miðlum. Það væri mjög skrítið að vera að selja kostun í podcast til hliðar við það að vinna hér að tekjuöflun hjá Sýn - það er hagsmunaárekstur,“ segir Simmi um ákvörðunina. „En þar fyrir utan þá er verkefnið hér ærið og ég hef ekki tíma. Það eru bara 24 stundir í sólarhringnum. Það er meginástæðan. Þetta var hugsað til þess að hafa gaman að því og vissulega var það það en það þarf að vera tími til þess,“ bætir hann við og segir fjögur ár vera góðan tíma. Hlaðvarpið 70 mínútur hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum og ræddu þeir félagar þar um allt milli himins og jarðar. Oft komu þeir líka inn á sitt persónulega líf, hræringar í ástarmálum og aðrar vendingar. Fyrir tveimur árum vakti mikla athygli þegar Simmi ræddi opinskátt í hlaðvarpinu um vinslit sem hann hafði gengið í gegnum og reyndu mikið á hann. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Tímamót Vistaskipti Hlaðvörp Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Fleiri fréttir Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Sjá meira