Bjarni er efstur í öllum heiminum og Ísland er með þrjú inn á topp fimm Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 08:31 Rökkvi Hrafn Guðnason, Bjarni Leifs og Bergrós Björnsdóttir voru í miklum ham í 26.1 og voru öll inn á topp fimm í heiminum. @bergrosbjornsdottir Undankeppni heimsleikanna í CrossFit 2026 hófst með fyrsta hluta opna hluta heimsleikanna og við Íslendingar getum svo sannarlega verið stolt af okkar fólki.
Ísland átti tvo bestu karlana í heiminum í 26,1 og þá er besta konan okkar í fimmta sæti á heimsvísu. Bjarni Leifs hefur verið staðfestur sem sigurvegari 26.1.@crossfitgames Æfingin snerist um margar endurtekningar á því að kasta þungum bolta í vegg, hoppa yfir kassa og svo að stíga upp á og yfir kassa með þungan bolta. Boltinn var sex kíló hjá konunum en níu kíló hjá körlunum. Þessi æfing reyndi því vel á fæturna hjá íþróttafólkinu. Bjarni Leifs var eini karlinn í heiminum sem kláraði 26,1 á undir ellefu mínútum en hann fór í gegnum alla æfinguna á 10 mínútum og 59 sekúndum. Bjarni var því efstur í öllum CrossFit-heiminum í þessari æfingu. Það voru síðan aðeins sex sekúndur í næsta mann sem var landi hans Rökkvi Hrafn Guðnason á 11 mínútum og fimm sekúndum. Þriðji var síðan Bandaríkjamaðurinn Colten Mertens á 11 mínútum og 16 sekúndum. Þetta eru sannarlega framtíðarmenn því Bjarni er 22 ára gamall og Rökkvi Hrafn einu ári yngri. Hin nítján ára gamla Bergrós Björnsdóttir varð í fimmta sæti hjá konunum en hún kláraði á 10 mínútum og 55 sekúndum. View this post on Instagram A post shared by CrossfitCoverage (@coveringcf) Eins og sjá má hér fyrir ofan þá gerðu þessi þrjú æfinguna á sama tíma. Á undan Bergrós voru Mirjam von Rohr frá Sviss, Lucy Campbell og Keira McManus frá Beretlandi og Andra Moistus frá Eistlandi. Von Rohr var langfyrst en hún kláraði á 9 mínútum og 50 sekúndum. Næstu íslensku stelpur voru Elín Birna Hallgrímsdóttir (200. sæti) og Steinunn Anna Svansdóttir (285. sæti). Bjarni, Rökkvi og Bergrós voru ánægð með uppskeruna og birtu mynd af sér saman eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir)
CrossFit Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Sigraði sitt fjórða PGA-mót þrátt fyrir óveður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Dagskráin í dag: Síðasti leikur Frakka fyrir HM Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Valskonur styrkja sig Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Hágrét þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skilja vináttuna eftir utan vallar Ollie Kane kynntur til leiks Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Skoraði sneggstu þrennu sögunnar í sturluðum sigri „Hann breytti kúlturnum“ Messi á bekknum í sigri Argentínu Sjá meira