Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir skrifar 3. mars 2026 08:00 Nú styttist í að frjálshyggjupostular stjórnmálanna dragi fram Gini-stuðulinn og slái um sig í kosningabaráttunni. Þeir segja að Ísland standi vel í alþjóðlegum samanburði á tekjuójöfnuði. Tölfræðin verður notuð eins og varnarskjöldur: “Sjáið, við erum ekki svo ójöfn. Sjáið, kerfið virkar.” Hins vegar borgar Gini-stuðullinn ekki leigu. Hann kaupir ekki lyf. Hann fyllir ekki ísskápa. Gini er tæki til að mæla dreifingu tekna. Á Íslandi er hann reiknaður út frá jafngildum ráðstöfunartekjum þar sem tekjur heimila eru sameinaðar, skattar dregnir frá og upphæðin svo dreift samkvæmt alþjóðlegum kvarða. Hann mælir í einni tölu milli 0 og 100 hvernig samanlagðar ráðstöfunartekjur á neyslueiningu allra einstaklinga í landinu dreifast. Hátt gildi táknar mikinn ójöfnuð. Þetta er tæknilega snyrtilegt. En það er ekki það sama og að raunveruleikinn sé snyrtilegur. Stuðullinn segir ekkert um húsnæðiskostnað. Hann segir ekkert um þá sem borga 350 þúsund krónur í leigu af 560 þúsund króna heildarlaunum. Hann segir ekkert um ellilífeyristaka með 275 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Hann segir ekkert um þann langveika sem greiðir stóran hluta tekna sinna í lyf og læknisþjónustu. Hann segir ekkert um foreldra sem vinna þrjú störf til að halda heimili gangandi. Við fáum samt að heyra að Ísland standi vel í samanburði við önnur lönd. Samkvæmt rannsóknum Vörðu:- 23% launafólks á Íslandi býr við efnislegan og félagslegan skort.- Um 30% nær ekki endum saman.- 40% vinnandi fólks getur ekki mætt 100 þúsund króna óvæntum útgjöldum.- Helmingur þjóðarinnar á minna en eins mánaðar sparifé. Þetta er því ekki jaðarfyrirbæri. Árið 2023 voru 9% landsmanna undir lágtekjumörkum, eða um 35.000 einstaklingar. Rannsóknir sýna að fólk með lágar tekjur býr við verri heilsu en aðrir, en fimmtungur þeirra sem búa við tekjur undir 499 þúsund krónum metur líkamlega heilsu sína slæma. Árlegur samfélagslegur kostnaður fátæktar er metinn á yfir 53 milljarða króna. Það er því í raun dýrara að viðhalda fátækt en að útrýma henni. Samt sem áður er umræðan oft á þann veg að almenningur eigi að „kaupa minna af parketi“ til að hemja verðbólgu, eða kaupa meira til að örva hagvöxt. Slík orðræða afhjúpar forréttindablindu. Hún gerir ráð fyrir að allir hafi svigrúm til þess að kaupa hreinræktaðan hund eða fara til Tene. Að allir standi á sama stað, sem þeir gera ekki. Sumir þurfa að velja á milli þess að kaupa lyf eða mat. Meðaltöl blekkja líka. Ef einn einstaklingur hefur 1,5 milljónir í mánaðartekjur og annar 500 þúsund er meðaltalið 1 milljón. Sú tala segir ekkert um þann sem lifir á lægri upphæðinni. Miðgildi gefur raunsærri mynd, en jafnvel það sýnir ekki óöryggið, kvíðann og stöðuga óvissuna sem fylgir því að vera alltaf á mörkum þess að detta niður næsta þrep. Húsnæðisóöryggi er eitt alvarlegasta heilsufarslega áfall sem einstaklingur getur orðið fyrir. Sífelldir búferlaflutningar og sófagisting eru ekki tölfræðileg frávik, þau eru raunverulegt líf fólks og áhrifin lenda ekki síst á börnum. Meira en eitt af hverjum 10 börnum elst upp við fátækt á Íslandi. Gini-stuðullinn getur verið gagnlegur í samanburði milli landa. En hann er ekki mælikvarði á öryggi, lífsgæði eða reisn. Að fela sig á bak við hann er pólitísk ákvörðun. Ef vilji er til að draga úr fátækt þarf raunverulegt húsnæðisöryggi, hækka þarf lægstu laun og lífeyri, styrkja alla almannaþjónustu og hætta að líta á fátækt sem „eðlilegt botnfall“ hagkerfisins. Tölfræði er notuð til að réttlæta pólitískar ákvarðanir, en hún breytir ekki lífinu hjá þeim sem lifa við skort. Það er samfélagið sjálft sem velur að horfast ekki í augu við veruleikann og finnst mannlegt “botnfall” eðlilegt. Þjóðfélag sem telur sig gott á pappír, en skilur eftir tugþúsundir í stöðugri fjárhagslegri neyð er hvorki jafnaðarsamfélag né gott velferðarsamfélag. Höfundur skipar 6. sætið á framboðslista Sósíalistaflokks Íslands til borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sósíalistaflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar