Laufey og Collab í eina sæng Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. mars 2026 18:00 Laufey Lín er nýjasti samstarfsaðili kollagendrykksins Collab. Aðsend, Vísir/Vilhelm Súperstjarnan Laufey Lín er nýjasti samstarfsaðili íslenska kollagendrykksins Collab. Hún segist alltaf byrja Íslandsdvölina á því að fá sér ískaldan Collab og samstarfið hafi verið skemmtilegt.
Í fréttatilkynningu segir: „Collab kynnir með stolti nýtt og spennandi samstarf við Grammy-verðlaunahafann og stórstjörnuna Laufey. Í tilefni samstarfsins hefur Laufey þróað einstakt nýtt bragð fyrir Collab sem kemur í takmörkuðu upplagi.“ View this post on Instagram A post shared by COLLAB (@collab.iceland) Hugmyndin að samstarfinu kviknaði eftir heimsókn Laufeyjar til Íslands en fyrir hana skiptir máli að vinna með vörumerkjum sem hafa sterka tengingu við íslenska menningu. „Eitt það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim til Íslands er að hoppa út í búð og kaupa mér Collab. Það var mér mikil ánægja að vinna með Collab og fá að búa til mitt eigið bragð frá grunni. Mig langaði að skapa eitthvað sem endurspeglar minn listræna heim og ég vona að fólk geti upplifað tónlistina mína pakkaða í dós,“ segir Laufey um samstarfið. Jarðarber og matcha Innblástur samstarfsins er sótt í draumkennda og rómantíska heiminn sem Laufey hefur skapað og endurspeglast það bæði í bragðinu sjálfu og í sérhannaðri umgjörð vörunnar. „Hún valdi að vinna með bragðtóna sem hún heldur sérstaklega upp á, jarðarber og matcha. Litirnir í herferðinni og á dósinni eru jafnframt sóttir í þennan bragðheim,“ segir Vaka Njálsdóttir vörumerkjastjóri Collab. Samstarfið kemur fram á sama tíma og Laufey undirbýr stórtónleika í Kórnum í Kópavogi, þar sem hún mun stíga á svið fyrir íslenska aðdáendur á stærsta tónleikaviðburði ársins. View this post on Instagram A post shared by COLLAB (@collab.iceland) Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og ljóst að heimkoman verður sannkölluð tónlistarhátíð. „Við erum virkilega stolt af þessu nýja samstarfi og það hefur verið frábært að vinna með Laufey og hennar teymi við gerð vörunnar. Hér fáum við að færa Collab aðdáendum nýjan drykk þar sem nýtt bragð og draumkenndur heimur skapa sterka og heildstæða upplifun fyrir neytendur,“ segir Vaka jafnframt. Nýja bragðið kemur í verslanir 3. mars en drykkurinn verður bæði fáanlegur með og án koffíns. „Samstarfið er hluti af stefnu Collab í að vinna með skapandi einstaklingum sem hafa skýra rödd og sterka tengingu við sína aðdáendur.“
Laufey Lín Drykkir Mest lesið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira