Þegar Bítlakynslóðin verður gömul Gunnar Salvarsson skrifar 2. mars 2026 14:30 Í upphafi þriðja æviskeiðsins bíður elli kelling handan við hornið með sínar ljótu krumlur, ef hún hefur ekki þegar náð að læsa klónum í kallinn. Við sem erum fædd á eftirstríðsárunum, þegar einhverjir fjölmennustu árgangar íslenskra barna horfðu fyrst framan í heiminn, stóðum örugglega flest í þeirri trú að stjórnvöld gerðu sér fullkomlega grein fyrir því að á þriðja áratug 21. aldar kæmu flestöll þessara barna til með að verða lögbundin gamalmenni. Þegar þessi stund rennur svo upp kemur á daginn að allir verða mjög hissa. Fyrirsjáanleikinn alger. Fyrirhyggjan engin. Lengi vel var ég svo ungur, að minnsta kosti í anda, að öldrunarmál voru eins og skip í fjarska, eitthvað sem þyrfti að leiða hugann að í framtíðinni. Trúin á að stjórnvöld í sjö tugi ára hefðu gert ráðstafanir til að taka þessari fjölmennu kynslóð Bítlatímans og hippanna opnum örmum í ellinni var slík að ég sá fyrir mér huggulega bústaði fyrir aldraða með hljómflutningsgræjum og vandaðri hjúkrunar- og stuðningsþjónustu þar sem við sætum í ruggustólum og hlustuðum á I Can’t Get No… með Rolling Stones og önnur svipmikil lög löngu liðinna daga, meðan einhver kæmi með pillurnar, annar tæki púlsinn og sá þriðji hirti táneglurnar. Þetta er ekki að raungerast. Kerfið er í fleirtölu Íslensk stjórnvöld vilja að fólk geti búið heima hjá sér eins lengi og það getur þegar aldurinn færist yfir, en þjónusta við gamla fólkið er dreifð á milli margra kerfa og vandanum að verulegu leyti varpað yfir á aðstandendur. Fyrir margt ungt fólk sem á aldraða foreldra er það eins og happdrættisvinningur af stærri gerðinni að fá jákvætt svar við dvöl á hjúkrunarheimili. Hundruð aldraðra liggja á bráðadeildinni og á ýmsum deildum sjúkrahúsa sem ættu í raun að vera á hjúkrunarheimilum eða heima með viðeigandi stuðningi. Tæpast getur lausnin falist í því eingöngu að byggja fleiri hjúkrunarheimili. Slík uppbygging er bæði kostnaðarsöm og krefst mikils mannafla sem nú þegar er skortur á. Auk þess vilja flestir eldri borgarar búa heima eins lengi og unnt er. Lykilspurningin er því þessi: hvernig getum við byggt upp sterkari og skilvirkari heimahjúkrun sem gerir fólki kleift að lifa sjálfstæðu og sómasamlegu lífi lengur? Veikleiki íslenska velferðarkerfisins er sá að það er í fleirtölu. Það er ekki eitt kerfi heldur mörg. Heimahjúkrun er á vegum ríkisins í gegnum heilsugæsluna. Heimaþjónusta – aðstoð við daglegt líf – er á vegum sveitarfélaga. Sjúkrahús eru í ríkisrekstri. Hjúkrunarheimili eru fjármögnuð af ríkinu en oft rekin af sjálfseignarstofnunum eða sveitarfélögum. Endurhæfing er á enn öðrum vettvangi. Fyrir einstakling sem þarf aukna þjónustu þýðir þetta að mörg kerfi koma að málinu samtímis, sérhvert með eigið skipulag, fjármagn og reglur. Afleiðingin getur orðið sú að enginn ber raunverulega ábyrgð á heildarmyndinni. Um langt árabil hefur verið talað fyrir því að þjónusta við aldraða þyrfti að vera samþættari og ábyrgðin skýrari. En það gerist lítið. Ein leið til að ná því gæti verið að styrkja sveitarstjórnarstigið, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Ef sveitarfélögin bæru gæfu til þess að sameinast gætu þau orðið margfalt öflugri eining með burði til að taka meiri ábyrgð á þjónustu við aldraða. Slíkt sveitarfélag gæti skipulagt heimahjúkrun, félagsþjónustu, endurhæfingu og þjónustuíbúðir sem eina heild í stað þess að þjónustan væri dreifð á milli margra kerfa. Með slíkri nálgun væri einnig hægt að byggja upp öflug hverfisteymi sem fylgdu einstaklingum yfir lengri tíma. Það myndi auka samfellu í þjónustu, bæta upplýsingaflæði og gera starfsfólki kleift að bregðast fyrr við þegar heilsu eða aðstæður fólks breytast. Öldrun þjóðarinnar er ekki vandamál sem hægt er að fresta. Spurningin er ekki hvort við þurfum að breyta skipulagi þjónustu við aldraða heldur hvernig við gerum það. Ef okkur tekst að byggja upp sterkari og samþættari þjónustu í heimahúsum getum við bætt lífsgæði fólks og nýtt betur þá fjármuni og mannafla sem samfélagið hefur. Það þarf hins vegar pólitískt hugrekki til að endurskipuleggja kerfið og hugsa þjónustuna fyrst og fremst út frá lífi fólks, ekki stofnunum. Áhyggjulaust ævikvöld, hvar er það? Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar