Handbolti

Frá­bær frammi­staða Hauks dugði skammt

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukur Þrastarson var afar öflugur í kvöld fyrir Löwen.
Haukur Þrastarson var afar öflugur í kvöld fyrir Löwen. Instagram/@rnloewen

Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson var öflugur í liði Rhein-Neckar Löwen og kom beint að 17 mörkum í tapi fyrir Füchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Löwen heimsótti Füchse í dag og úr varð hörkuleikur. Heimamenn voru hins vegar með undirtökin lengst af og ávallt skrefi á undan.

Slakur kafli Löwen þegar um tíu mínútur voru eftir gerði út um leikinn. Füchse skoraði þá sex mörk í röð á rúmlega fimm mínútna kafla til að breyta stöðunni úr 26-24 í 32-24.

Úrslitin urðu 35-28 fyrir Berlínarbúana.

Haukur fór fyrir sóknarleik Ljónanna í dag þar sem hann skoraði sex mörk og lagði upp ellefu stykki.

Löwen er með 26 stig í sjöunda sæti, fimm á eftir Gummersbach liði Guðjóns Vals sem er sæti ofar. Füchse fer upp í annað sæti með 38 stig, fjórum á eftir Íslendingaliði Magdeburgar sem er á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×