Handbolti

„Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, fagnar bikarmeistaratitlinum með lærisveinum sínum. 
Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, fagnar bikarmeistaratitlinum með lærisveinum sínum.  Vísir/Anton Brink

Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir það hafa verið skýrt markmið þegar hann tók við karlaliði félagsins í handbolta að koma liðinu aftur í fremstu röð og berjast um alla þá titla sem í boði eru. Það hafi verið tekið skýrt fram á fyrsta fundi hans með leikmönnum liðsins.  

„Það er æðisleg tilfinning að vera búnir að landa þessum bikarmeistaratitli. Það er stór hluti af þessu liðið að vinna titil í meistaraflokki í fyrsta skipti á sínum. Við erum að brjóta hérna ís og binda endi á bikarþurrð hjá félaginu,“ sagði Gunnar sigurreifur að leik loknum en það eru 12 ár síðan Haukar urðu síðast bikarmeistarar og fimm ár síðan það varð deildarmeistari. 

„Ég fann fyrir miklu hungri í félaginu að vinna titla þegar ég tók við og það hungur var svo sannarlega áþreifanlegt í þessari bikarviku. Það eru ofboðslega margir í baklandi félagsins sem leggja hönd á plóg og sjá til þess að umgjörðin í kringum strákana sé til fyrirmyndar og það var frábært að spila fyrir framan fjölmarga stuðningsmenn Hauka hérna í kvöld,“ sagði hann enn fremur. 

„Við spiluðum frábæra vörn í þessum leik og Grétar Ari var stórkostlegur þar fyrir aftan. Við náðum svo að dreifa álaginu vel og það varð til þess að orkustigið var hátt allan leikinn. Við vorum sannfærðir um það að við ætluðum að ná í þennan bikar og mér fannst ég sjá það í leikmönnum liðsins allt frá upphafi til enda í þessum leik,“ sagði þessi reynslumikli þjálfari. 

„Við ræddum það á fyrsta fundi sem ég hélt með leikmönnum liðsins eftir að ég tók við stjórnartaumunum hjá liðinu að við ætluðum að setja stefnuna á að vinna alla þá titla sem í boði eru. Nú er bikarmeistaratitilinn í höfn og við fögnum því um helgina. Svo einbeitum við okkur að því að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að bæta hinum tveimur titlunum við í safnið í vor,“ sagði Gunnar. 

Bikarinn fer hér á loft og Gunnar Magnússon fagnar bikarmeistaratitlinum langþráða með leikönnum sínum. Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×