Golf

Gunn­laugur semur við um­boðs­skrif­stofu Schefflers

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gunnlaugur Árni er kominn með umboðsmann. Scottie Scheffler er á mála hjá sömu umboðsskrifstofu.
Gunnlaugur Árni er kominn með umboðsmann. Scottie Scheffler er á mála hjá sömu umboðsskrifstofu. Getty

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýlega undir samning við eina stærstu umboðsskrifstofu heims. Gunnlaugur var sérlega eftirsóttur af umboðsmönnum um heim allan.

Greint er frá því á golf.is að Gunnlaugur hafi skrifað undir hjá Hambric Sports, sem er á meðal stærri umboðsskrifstofa heims. Á mála hjá Hambric er til að mynda Scottie Scheffler, besti kylfingur heims, ásamt Brooks Koepka og Dustin Johnson og fleiri.

Phil Mickelson var þá með samning við Hambric í þrjá áratugi og stofan verið með 23 sigurvegara risamóta á sínum snærum í þau 46 ár sem hún hefur verið starfrækt.

Daninn Mark Haastrup er nýr umboðsmaður Gunnlaugs Árna en hann lék í nokkur ár á Evrópumótaröðinni.

Gunnlaugur hefur mikla athygli vakið með góðum árangri í háskólagolfi og áhugamannagolfi vestanhafs en hann er á skólastyrk í Louisiana State. Hann var valinn kylfingur ársins af Golfsambandinu í lok síðasta árs.

„Ég er mjög ánægður að vera búinn að taka þessa ákvörðun eftir langt ferli þar sem margar umboðsskrifstofur sýndu mikinn áhuga og ég átti í samskiptum við marga aðila. Mér líst mjög vel á þessa niðurstöðu og ég hef góða tilfinningu fyrir Mark og Hambric Sports enda mikil reynsla að baki. Ég er sannfærður um að ég muni fá góðan stuðning og ég er spenntur fyrir næstu árum með þeim,“ er haft eftir Gunnlaugi um tíðindin.

Næsta mót Gunnlaugs Árna fer fram á Sawgrass CC í Flórída 7.-9. mars




Fleiri fréttir

Sjá meira


×