Freyr nær orðlaus þegar skilaboð bárust frá Ancelotti: „Meinarðu þetta? Aron Guðmundsson skrifar 26. febrúar 2026 10:00 Freyr Alexandersson þjálfari Brann ætlar að bjóða Ancelotti út að borða þegar að Ítalinn kemur til íslands Vísir/Samsett Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, var nær orðlaus á blaðamannafundi fyrir leik gegn Bologna í kvöld þegar að skilaboð bárust frá ítalska þjálfaranum og goðsögninni Carlo Ancelotti sem vill heimsækja Ísland.
Brann mætir Bologna í seinni leik liðanna á Ítalíu í kvöld og blaðamannafundur Freys í gær tók óvænta stefnu þegar að skilaboð bárust frá þjálfaranum og goðsögninni Carlo Ancelotti sem er nú landsliðsþjálfari Brasilíu. Á umræddum blaðamannafundi í svari við spurningu eins af ítölsku blaðamönnunum á svæðinu lýsti Freyr aðdáun sinni á Carlo Ancelotti og því sem hann hefur afrekað á sínum ferli. „Ég er mikill aðdáandi Carlo Ancelotti og hef fylgst mjög náið með honum og einnig þjálfað nokkra leikmenn sem hafa áður spilað undir hans stjórn,“ sagði Freyr og bætti við. „Ég hef lesið allar bækur um hann og reyni að sanka að mér eins miklum upplýsingum um hann og mögulegt er.“ Ekki leið að löngu þar til að Marco Nosotti, blaðamaður Sky Sports á Ítalíu, kvaddi sér hljóðs á blaðamannafundinum og sagðist hafa fengið skilaboð frá Carlo Ancelotti. View this post on Instagram A post shared by EsteNews Sport (@este_news_sport) „Carlo Ancelotti skrifaði mér: „Ég vil heimsækja Ísland,“ sagði Marco við Frey. „Meinarðu þetta?“ svaraði Freyr. „Fékkstu skilaboð frá Carlo? Ég mun bjóða honum í stóran kvöldverð á besta veitingastaðnum á Íslandi. Það er víst. Ég er alveg orðlaus. Hver var spurningin?“ Kemur þá í ljós að Ancelotti er gamall kunningi Nosotti og ólust þeir nánast upp hlið við hlið í æsku á Ítalíu. Seinni leikur Bologna og Brann í umspili fyrir sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar hefst klukkan átta í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. Staðan er einvíginu er 1-0 Bologna í vil eftir fyrri leikinn í Bergen.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira