„Af hverju ekki?“ Aron Guðmundsson skrifar 25. febrúar 2026 12:33 Lið KA/Þórs flaug inn í undanúrslit bikarkeppninnar í handbolta en er nú á leið í rútu til Reykjavíkur. Framundan undanúrslitaleikur gegn Val í kvöld. KA Akureyri Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þórs segir sitt lið mæta pressulaust til leiks gegn besta liði Íslands um þessar mundir, Val, í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta í kvöld. Eftirvænting er ríkjandi hjá norðankonum fyrir leik kvöldsins og trúin á sigri til staðar.
KA/Þór og Valur mætast í seinni undanúrslitaleik kvöldsins klukkan korter yfir átta í kvöld og það var í morgun sem að lið KA/Þórs hélt af stað frá Akureyri til Reykjavíkur í rútu. „Um leið og þetta kemur upp þá voru valkostirnir annað hvort að halda suður til Reykjavíkur í gær eftir æfingu hjá okkur og gista. Það var alveg möguleiki en svo mátum við það ekkert verri möguleika að ferðast til Reykjavíkur núna í morgun,“ segir Jónatan, þjálfari KA/Þórs í samtali við Vísi. Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/ÞórVísir/Daníel Þór „Við erum á leiðinni suður í stórri og þægilegri rútu. Þetta er staða sem við þekkjum ágætlega. Að vera saman allan daginn og erum bara ánægð með það. Veðrið er líka fínt núna þannig við erum bara nokkuð sátt með þetta. Við erum að mæta upp á hótel um fjögur leitið í dag, tökum liðsfund og svona. Þetta er bara flottur undirbúningur.“ Gulrót sem stefnt var að Framundan risavaxið verkefni í undanúrslitum bikarsins gegn besta liði Íslands um þessar mundir, Val. KA/Þór er á stað sem stefnt var að vera á eftir að hafa tryggt veru sína í Olís deildinni á dögunum þar sem KA/Þór er nýliði á yfirstandandi tímabili. „Við settum okkur þetta sem svolítið markmið í vetur. Sem nýliðar í Olís deildinni vildum við bara fyrst og fremst tryggja sæti okkar í deildinni og svo átti þetta að vera gulrótin. Að komast þetta langt í bikarnum. KA/Þór hefur verið á þessum stað áður en það eru nokkur ár síðan.“ „Það er fyrst og fremst bara eftirvænting í hópnum. Verkefnið er klárlega stórt. Spilamennska Vals í síðustu leikjum sem og leikmannahópurinn sem liðið býr yfir er þess eflaust valdandi að margir hugsa að við séum á leið í alvöru verkefni. Við erum samt þannig gerð að við trúum á verkefnið. Það hafa átt sér stað óvæntir hlutir í bikarnum áður.“ Þarf allt að ganga upp Fáir búast við því að KA/Þór nái að leggja Val að velli í kvöld og tryggja sér sæti í úrslitaleiknum. „Við þurfum topp frammistöðu. Það þarf allt að ganga upp hjá okkur og Valur þarf á sama tíma að eiga ekki sinn besta leik. Við gerum okkur alveg grein fyrir því. Við erum ekki að fara mæta í þennan leik bara til þess eins að horfa á. Við ætlum að gefa Valsstúlkum leik.“ Lið Vals er ríkjandi Íslands- og Evrópubikarmeistari.Vísir/Anton Brink „Pressan í bikarnum er sú að annað hvort vinnurðu leikinn og ferð áfram eða tapar og dettur út. Ég held það geri sér allir grein fyrir því að Valur eru með langbesta liðið á Íslandi en það er engin pressa á okkur. Fyrir okkur er þetta samt líka þannig að við trúum á okkar hugmyndafræði. Við höfum sýnt það í vetur að þegar við erum góðar, þá erum við drullugóðar. Við erum svolítið að vinna með af hverju ekki? í dag“ „Af hverju ekki að vinna Val í dag?“ gæti lið KA/Þórs hugsað í dag og vita þá um leið að Valur hefur unnið báða leiki liðanna á yfirstandandi tímabili í deildarkeppni Olís deildarinnar. „Við spiluðum við þær tvo mjög ólíka leiki. Fyrst fyrir norðan og þar vorum við nálægt okkar besta í lengst af í leiknum. Svo förum við og spilum við þær fyrir sunnan, á þeirra heimavelli og þá sýndu þær sitt rétta andlit og ég vil meina að sá leikur hafi litast af meiðslum Mateu í okkar liði. Það var pínu sjokk. Við sjáum alveg færi í þessu, gerum það alltaf. Höldum í okkar hugmyndafræði eins og við höfum verið að gera hingað til. Við vitum hvar okkar styrkleikar liggja sem og þeirra. Svo er það bara okkar að nýta þá. Finna hvað þarf að gera.“ Leikur KA/Þórs og Vals í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta hefst klukkan korter yfir átta á Ásvöllum í kvöld og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi. Fyrr um kvöldið mætast lið Hauka og Fram í fyrri undanúrslitaleiknum. Sá leikur hefst klukkan sex og verður einnig lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Powerade-bikarinn KA Þór Akureyri Valur Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira