Viðar tekur slaginn með Selfossi Sindri Sverrisson skrifar 20. febrúar 2026 13:33 Viðar Örn Kjartansson er mættur aftur í Selfoss-búninginn. UMF Selfoss Markahrókurinn Viðar Örn Kjartansson er mættur heim á Selfoss og mun taka slaginn með sínu uppeldisfélagi í sumar.
Samhliða því að spila fyrir Selfoss mun Viðar sækja sér þjálfaramenntun með það í huga að hann komi með enn frekari hætti inn í knattspyrnustarfið hjá Selfyssingum. Samningur hans er til þriggja ára. Þetta tilkynntu Selfyssingar í dag og þar með sameina þeir Viðar og Jón Daði Böðvarsson krafta sína að nýju með uppeldisfélaginu eftir að hafa síðast spilað þar saman í efstu deild sumarið 2012. Viðar var síðast á mála hjá KA en mætir nú til leiks með Selfossi í 2. deild með alls 174 mörk í 453 deildarleikjum á ferilskránni, auk 32 A-landsleikja. Eftir að hafa kvatt Selfoss að loknu tímabilinu 2012 lék Viðar eitt ár með Fylki en var svo um árabil í atvinnumennsku og raðaði inn mörkum í Noregi, Kína, Svíþjóð og Ísarel auk þess að spila einnig í Rússlandi, Tyrklandi, Grikklandi og Búlgaríu, áður en hann kom til liðs við KA og varð bikarmeistari sumarið 2024. Selfyssingar féllu úr Lengjudeildinni á síðustu leiktíð, þrátt fyrir fjögur mörk Jóns Daða í þeim sjö leikjum sem hann lék eftir heimkomuna. Þeir Viðar og Jón Daði deila metinu á Selfossi yfir flest mörk liðsins í efstu deild, með tíu mörk hvor, en Jón Daði er sá leikjahæsti í efstu deild í sögu félagsins með 43 leiki. Viðar, sem verður 36 ára í næsta mánuði, kom við sögu í 15 deildarleikjum með KA í Bestu deildinni í fyrra en skoraði ekki í þeim leikjum. Hann greindi frá því í viðtali í síðasta mánuði að hann hefði um árabil glímt við áfengis- og spilafíkn en leitað sér aðstoðar að loknu síðasta keppnistímabili. „Punkturinn yfir i-ið var að fara í meðferðina. Ég fór á Vog og fannst frábært að hafa gert það. Ég stunda AA-fundi, hef farið á fundi vegna spilafíknarinnar og er reglulega hjá sálfræðingi. Svo taka við tólf sporin, þetta tengist allt. Ég er orðinn mjög meðvitaður um þetta allt saman, meðferðin var svolítið til að loka hringnum og nú held ég áfram á fundum 2-3 sinnum í viku. Það heldur manni við efnið,“ sagði Viðar í viðtali við Fótbolta.net.
UMF Selfoss Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira