Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. febrúar 2026 15:28 Sigurður Ingi kveður formannsembættið eftir tíu ár. Vísir/Anton Brink Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins á 38. flokksþinginu sem fer fram í dag og á morgun.
Á morgun verður kosið um nýjan formann þar sem Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður etja kappi. Sigurður Ingi lætur af formennsku sinni eftir tíu ár í brúnni. Framsóknarmenn láti af tuði „Þegar við skiluðum ríkisstjórnarkeflinu síðast var landið okkar, þjóðin, í efsta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna. Næst á eftir okkur voru Noregur og Sviss, sem höfðu á árinu áður verið í fyrsta og öðru sæti. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta gerist þegar samfélag nær jafnvægi á milli atvinnu, stöðugleika og velferðar.“ „En við höfum einnig séð hvernig fer þegar flokkurinn stendur ekki saman, upplifað ósigra í kosningum og í kjölfarið ósamlyndi, metnaðarleysi og kjarkleysi. Þessa helgina höfum við val hvaða leið við viljum fara. Hvort þegar við förum á fætur á morgnana og lítum á glasið, hvort það sé hálf fullt eða hálf tómt. Við höfum val um hvort við viljum ekki henda af okkur oki minnimáttarmennskunnar og sækja fram samheldin, í samvinnu allra í grasrótinni og tala fyrir stefnu og grunngildum Framsóknar. Eða að halda áfram að vera lítil í okkur og tuða hvert við annað og út í hvert annað,“ sagði Sigurður Ingi. Árangur hafi gert Framsókn að kerfisflokki „Af hverju vaða öfgaöflin uppi? Popúlistar til hægri og vinstri. Af hverju verða umburðarlyndir, frjálslyndir umbótaflokkar fyrir barðinu á þessari tískubylgju? Ekki bara við í Framsókn heldur systurflokkar okkar úti um allan heim. Það sem gerðist er að þegar okkar heimshluti varð lýðræðislegri, frjálslyndari, umburðarlyndari vegna okkar stefnu undanfarinna áratuga, vegna þess að okkur og systurflokkar okkar í öllum löndum tókst að breyta samfélaginu. Þá fórum við að verja kerfið, við urðum kerfisflokkarnir, valdaflokkarnir. Flokkar sem við höfðum áður gagnrýnt.“ „Áður fyrr vorum við róttækari, gagnrýnni á vald og valdhafa en vorum, erum orðin varðhundar kerfisins. Vildum og viljum hafa samfélagið eins og það var orðið, enda frábært samfélag. Popúlistarnir hafa nýtt sér þetta þó svo að þeir boði afturhvarf til fortíðar sem engin heilvita manneskja vill taka upp á nýju, þá boða þeir breytingar og ná eyrum fólks,“ sagði hann. „Yes, we can“ Hann rifjaði upp kosningabaráttu Baracks Obama fyrrverandi Bandaríkjanna þegar hann hlaut kjör árið 2008. „Hver man ekki eftir frægri kosningabaráttu og orðræðu Obama í Bandaríkjunum: „Yes, we can!“ Þar sem áskoranir um breytingar voru settar fram í spurnarstíl og ávalt svarað: Já, það getum við. Og það er þannig, við getum það.“ „Við þurfum taka aftur upp gagnrýnina á kerfið, verða róttækari, tala skýrar og þora að hafa hátt, þora að svara popúlistunum með sínar rangfærslur og hálfsannleik. Trúið mér, fyrir þessum málflutningi er hljómgrunnur og eftirspurn.“
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira