Lækkum skatta á barnafjölskyldur Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 07:32 Verðbólgan og vaxtastigið eru löngu farin að bíta illilega og gríðarlegar skattahækkanir á almenning í boði ríkisstjórnarinnar koma því illa við heimilin í landinu. Þar get ég nefnt vörugjöld á ökutæki, afnám samsköttunarheimildar hjóna og sambúðarfólks, hækkun skatta á leigutekjur, krónutöluhækkanir langt umfram verðbólgumarkmið og auðvitað kílómetragjaldið. Ég hef gjarnan tekið upp málefni fjölskyldunnar á Alþingi, ekki síst stöðu barnafólks, m.a. með frumvörpum, fyrirspurnum og fleiri þingmálum. Mér þótti því einboðið að óska eftir sérstakri umræðu á Alþingi við nýjan hæstvirtan félags- og húsnæðismálaráðherra, sem ráðherra fjölskyldumála, um stöðu barnafjölskyldna á Íslandi. Við í Sjálfstæðisflokknum trúum því að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins og höfum haft áhyggjur af viðhorfi þessarar ríkisstjórnar til fjölskyldunnar sem einingar. Viðhorfi sem birtist m.a. í afnámi heimildar til samsköttunar þar sem einblínt var á einstaklinginn sem skattaðila, ekki fjölskylduna. Og við í Sjálfstæðisflokknum höfum áhyggjur af stöðu barnafólks í þessu árferði. Fólks sem ber ekki einungis ábyrgð á að framfleyta sjálfu sér, heldur líka okkar minnsta og viðkvæmasta hópi, börnunum okkar. Í framangreindri umræðu kynnti ég tillögur þingmanna Sjálfstæðisflokksins til að bæta stöðu barnafólks: Meiri séreignarsparnað inn á húsnæðislán Skattafrádrátt vegna tómstunda barna Almennan skattafrádrátt vegna barna yngri en 16 ára Afnám virðisaukaskatts á barnavörur Afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði Skattafrádrátt vegna heimilisaðstoðar, þ.m.t. umönnunar barna Skattar eru of háir á barnafjölskyldur og við sjálfstæðismenn viljum létta undir með barnafjölskyldum með því að lækka skatta og skilja meira eftir í vösum þeirra. Með þessum aðgerðum tryggjum við stuðning við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Verðbólgan og vaxtastigið eru löngu farin að bíta illilega og gríðarlegar skattahækkanir á almenning í boði ríkisstjórnarinnar koma því illa við heimilin í landinu. Þar get ég nefnt vörugjöld á ökutæki, afnám samsköttunarheimildar hjóna og sambúðarfólks, hækkun skatta á leigutekjur, krónutöluhækkanir langt umfram verðbólgumarkmið og auðvitað kílómetragjaldið. Ég hef gjarnan tekið upp málefni fjölskyldunnar á Alþingi, ekki síst stöðu barnafólks, m.a. með frumvörpum, fyrirspurnum og fleiri þingmálum. Mér þótti því einboðið að óska eftir sérstakri umræðu á Alþingi við nýjan hæstvirtan félags- og húsnæðismálaráðherra, sem ráðherra fjölskyldumála, um stöðu barnafjölskyldna á Íslandi. Við í Sjálfstæðisflokknum trúum því að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins og höfum haft áhyggjur af viðhorfi þessarar ríkisstjórnar til fjölskyldunnar sem einingar. Viðhorfi sem birtist m.a. í afnámi heimildar til samsköttunar þar sem einblínt var á einstaklinginn sem skattaðila, ekki fjölskylduna. Og við í Sjálfstæðisflokknum höfum áhyggjur af stöðu barnafólks í þessu árferði. Fólks sem ber ekki einungis ábyrgð á að framfleyta sjálfu sér, heldur líka okkar minnsta og viðkvæmasta hópi, börnunum okkar. Í framangreindri umræðu kynnti ég tillögur þingmanna Sjálfstæðisflokksins til að bæta stöðu barnafólks: Meiri séreignarsparnað inn á húsnæðislán Skattafrádrátt vegna tómstunda barna Almennan skattafrádrátt vegna barna yngri en 16 ára Afnám virðisaukaskatts á barnavörur Afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði Skattafrádrátt vegna heimilisaðstoðar, þ.m.t. umönnunar barna Skattar eru of háir á barnafjölskyldur og við sjálfstæðismenn viljum létta undir með barnafjölskyldum með því að lækka skatta og skilja meira eftir í vösum þeirra. Með þessum aðgerðum tryggjum við stuðning við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar