„Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Lillý Valgerður Pétursdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 9. febrúar 2026 23:32 Fjaran hefur breyst mikið á skömmum tíma. Sýn Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg. „
Þetta landrof gerist bara á svona einni viku tæplega. Svo bara meira og meira, ef það gerir mikið brim þá grefur bara meira úr,“ segir Ólafur Steinar Björnsson, einn landeiganda sem hefur búið nálægt svæðinu alla sína ævi. „Það er náttúrlega þessi helvítis austanátt sem er búin að vera hérna meira og minna í allan vetur sem talið er að hafi valdið því að hún tekur allan sandinn hérna úr fjörunni og flytur þetta allt hérna vestur úr.“ Klippa: Óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar Hafið þið séð svona áður hérna? „Nei, ekkert þessu líkt. Ég er búinn að vera að hitta hér eldri menn og heimamenn hérna hafa aldrei upplifað þetta. Ekki svona, aldrei.“ Ólafur Steinar Björnsson er einn landeiganda og hefur búið nálægt svæðinu alla sína ævi.Sýn Gunnlaugur Jónsson leiðsögumaður segir það dramatískt hversu mikið svæðið hafi breyst. „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru til að fara í? Maður getur alveg séð það fyrir sér að þetta bílastæði geti horfið í einhverjum stormum ef þetta heldur áfram,“ segir hann og vísar til bílastæðanna fyrir ofan fjöruna. Ferðamenn láta þetta ekki á sig fá Þrátt fyrir hina breyttu ásýnd fjörunnar virtust ferðamenn sem heimsóttu staðinn í dag vera sáttir. Bjóst þú við að sjá þetta svona? „Jájájá, það er stórmerkilegt að sjá áhrif náttúruaflanna. Og veðrið er mjög gott,“ segir ferðamaðurinn Omar sem kom til Íslands frá Sádí-Arabíu. „Ég hef séð margar ljósmyndir og myndbönd og var svo spenntur. Ég vonaðist til að komast niður í fjöruna. Þetta er algjörlega magnað. Útsýnið er svo fallegt. Bara ef það væri ekki svona hvasst. En þetta er magnað og við erum að njóta okkar,“ segir Abdullah, sem kemur sömuleiðis frá frá Sádí-Arabíu. Mikil náttúruöfl eru þarna að verki.Sýn Fært stærðarinnar grjót sem vegi allt að tvö tonn En ætli ásýnd Reynisfjöru sé breytt til framtíðar? „Það er veðrið sem ræður þessu algjörlega. Ef það gerir ekki suðvestanátt þá verður þetta bara svona held ég,“ segir Ólafur Steinar Björnsson, einn landeiganda að Reynisfjöru. Guðna Einarssyni, bónda og landeiganda í Reynisfjöru, var mjög brugðið að sjá breytinguna á Reynisfjörunni um helgina. Hann sagði í samtali við fréttastofu í gær að það væri þekkt að sandurinn færist fram og til baka en þetta sé óvenjulegt. „En þetta sem gerðist þarna núna hefur aldrei gerst áður. Þetta er í það miklu mæli. Það gróf svo langt inn þarna við Reynisfjallið, þar er mikið aðdýpi. Þetta er sjálfsagt um hundrað metrar sem hefur grafið þarna inn. Þar fyrir utan er mikið dýpi og það er sjálfsagt eitthvað komið þarna inn. Ef það gerir mikið brim, þá gætum við orðið berskjaldaðir varðandi bílastæðið í Reynisfjöru.“ Hann áætlar að það séu um hundrað metrar í bílastæðið. „Þetta eru ógurlegir kraftar. Blágrýti eru steinar sem eru frá einu og upp í tvö tonn. Það gengur mikið á.“
Ferðaþjónusta Reynisfjara Mýrdalshreppur Tengdar fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02 Mest lesið Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Veður Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira
„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02