Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa 13. febrúar 2026 13:27 Raftákn komst á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki fimmta árið í röð þegar listinn var kynntur í nóvember á síðasta ári. Eva Hlin Dereksdóttir framkvæmdastjóri er fyrir miðju ásamt Gunnlaugi Búa Ólafssyni, sviðsstjóra iðnaðarsviðs (t.v.) og Elmari Arnarsyni. sviðsstjóra byggingasviðs. Verkfræðistofan Raftákn er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki sem kynntur var undir lok síðasta árs. Þetta er fimmta árið í röð sem fyrirtækið er á listanum og eru starfsfólk og eigendur himinlifandi með árangurinn.
Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns, segir það hafa verið eitt af hennar fyrstu verkefnum þegar hún hóf störf hjá fyrirtækinu að endurskoða gæðakerfið og verkefnastjórnun í fyrirtækinu og þar á meðal að skilgreina gæðamarkmið félagsins. „Ég setti það sem eitt af gæðamarkmiðunum að komast á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki eftir þrjú ár. Það gekk upp hjá okkur og undanfarin ár hefur það svo verið gæðamarkmið hjá okkur að halda vottuninni enda er hún til marks um heilbrigðan rekstur.“ Starfsfólk Raftákns tekst á við fjölda spennandi og krefjandi verkefna á hverjum degi. Hún segir vottunina hafa þá þýðingu fyrir eigendur og starfsfólk að hægt sé að treysta á stöðugan rekstur og langtímahugsun. „Fyrirtækið er eingöngu í eigu starfsmanna og hefur á nýliðnum árum töluvert bæst við hluthafahópinn, m.a. vegna vottunarinnar og þess sem hún stendur fyrir. Viðskiptavinir okkar hafa margir hverjir verið í viðskiptum við okkur til áratuga og vita því fyrir hvað við stöndum en vottunin hjálpar og eykur traust þegar kemur að því að kynna okkar þjónustu fyrir nýjum viðskiptavinum eða bjóða í verkefni.“ Jafnframt gerir vottunin fyrirtækið að ákjósanlegum samstarfsaðila með öðrum hönnuðum í stærri verkefnum. „Vottunin undirstrikar að við tjöldum ekki til einnar nætur heldur leggjum áherslu á orðspor og langtímahugsun í rekstrinum.“ Vinnan skilar sér út í samfélagið Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa og skiptast verkefnin á tvö svið, byggingarsvið og iðnaðarsvið. „Byggingasviðið sér um hönnun raflagna og lýsingar fyrir húsnæði og mannvirki af ýmsum toga, s.s. iðnaðarhúsnæði, íbúðar húsnæði, göng, hafnir og opinberar byggingar. Á iðnaðarsviði fer fram hönnun og forritun á stjórnkerfum fyrir iðnað, veitur, opinberar byggingar og fleira.“ Nokkrir öflugir starfsmenn á iðnaðarsviði. Stærstu verkefni fyrirtækisins í dag eru Eldisgarður Samherja á Reykjanesi og gagnaver atNorth á Reykjanesi og Akureyri. „Bæði þessi verkefni eru mjög stór á innlendan mælikvarða. Í báðum þessum verkefnum er Raftákn að hanna og veita ráðgjöf í tengslum við raflagnir og rafkerfi bygginganna ásamt því að hanna og forrita stjórnkerfin.“ Hún segir góðar líkur á því að þegar fólk fari í sund þá séu stýringarnar forritaðar af Raftákni og að þegar skrúfað sé frá krana þá komi dælustýring fyrirtækisins þar við sögu. „Okkur þykir gaman að sjá vinnuna okkar skilar sér úti í samfélagið, t.d. í svæðislýsingu fyrir skíðafólk, rafkerfum og lýsingu í skólum, íþróttahúsum og ýmsum opinberum byggingum, dælustýringum fyrir vatnsveitur bæjarfélaga, aðflugsljósum á flugvöllum og þannig mætti lengi telja. Okkar vinna er oft á bak við tjöldin, en það taka allir eftir því þegar þessi kerfi detta út.“ Raftákn hannaði raflagnir, lýsingu og hússtjórnarkerfi fyrir menningarhúsið Hof á Akureyri. Góð blanda ungs og reynslumikils starfsfólks Þó svo að sérhæfing Raftákns sé á rafmagnssviði eru verkefnin mjög fjölbreytt að sögn Evu. „Starfsmenn geta verið að forrita stýringu fyrir vatnsveitu einn daginn og þjark sem sér um að pakka fiski þann næsta. Raftákn hefur í auknum mæli tekið að sér verkefni sem lúta að því að bæta afköst í verksmiðjum eða fækka líkamlega erfiðum störfum þar sem við nýtum myndgreiningar og gervigreind til stýringa eða bætum við þjörkum eða færiböndum. Við búum þá iðulega til þrívíð líkön af framleiðslunni og hermum breytingarnar svo að viðskiptavinurinn geti metið útfærsluna og tekið upplýsta ákvörðun áður en farið er í stóra fjárfestingu.“ Undanfarin ár hefur öflugt starfsfólk gengið til liðs við fyrirtækið sem hefur tileinkað sér nýjungar í tækni og hugbúnaði. „Það hefur svo komið inn í hópinn til okkar þar sem fyrir eru einstaklingar með margra áratuga reynslu og sú blanda hefur gefið okkur gríðarlega breidd til að takast á við nýjar áskoranir og breytingar. Þegar ég ræði við starfsfólk um það hvernig verkefni séu áhugaverðust fæ ég iðulega svarið að þau séu flest öll áhugaverð, séu þau bara nógu krefjandi og næstum óleysanleg.“ Stefna á frekari vöxt á höfuðborgarsvæðinu Raftákn var stofnað á Akureyri árið 1976 og verður því 50 ára á árinu. „Nokkrir af stofnendum fyrirtækisins unnu hér í yfir 40 ár og erum við í dag að byggja á ævistarfi þessa fólks. Ég hóf störf sem framkvæmdastjóri félagsins fyrir átta árum og tók þá við starfinu af Árna Friðrikssyni, einum af stofnendum félagsins.“ Höfuðstöðvar Raftákns eru á Akureyri en skrifstofan á höfuðborgarsvæðinu flutti síðasta sumar í nýtt og stærra húsnæði að Skemmuvegi í Kópavogi. „Markmiðið er að stækka og efla skrifstofu Raftákns á höfuðborgarsvæðinu þar sem að verkefnum á suðvesturhorninu fer fjölgandi. Við sjáum ekki annað en að verkefnastaðan verði áfram góð. Hlutirnir geta þó breyst ansi hratt í þessum bransa og því þurfum við að vera vakandi fyrir bæði tækifærum og áskorunum.“ Er gott að reka fyrirtæki á Akureyri? „Já ég tel að það sé gott að reka fyrirtæki á Akureyri og að starfsumhverfið sé gott. Helstu kostir þess að reka fyrirtæki á Akureyri eru að það er mikil áhersla á fjölskylduvænt umhverfi. Leikskólamálin eru nokkuð góð og fólk þarf ekki að verja löngum tíma í umferðinni. Raftákn hefur alltaf lagt áherslu á að skapa gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs og fyrir vikið er starfsmannavelta lág hjá okkur, einkum á Akureyri. Ég væri þó til í að sjá meiri stefnumótun frá bæjaryfirvöldum um það hvernig við styrkjum atvinnulífið á svæðinu til framtíðar og vinnum að sameiginlegum hagsmunum.“ Hverjar eru helstu áskoranirnar í ykkar rekstrarumhverfi og greininni almennt? „Ein af áskorunum greinarinnar í heild er samkeppni erlendis frá. Laun og launatengd gjöld eru mjög há á Íslandi í samanburði við t.d. önnur Evrópulönd. Eina leiðin fyrir okkur til að standast þessa samkeppni er að vera fljótari eða betri í að leysa verkefnin. Stjórnvöld mættu að mínu mati huga að því að gera íslenskt hugvit samkeppnishæfara, bæði á innlendum og erlendum markaði. Við erum með hátt menntunarstig og góða háskóla og þekking okkar og ráðgjöf á fullt erindi á erlendan markað.“ Róbot sem starfsfólk Raftákns forritaði og sá um að afhenda drykki á Sjávarútvegssýningunni 2024. Hún nefnir einnig að það sé talsverð áskorun að fylgja eftir hröðum tæknibreytingum sem m.a. birtast í gervigreindinni. „Hjá Raftákni höfum við lagt mikla áherslu á að búa til menningu sem byggir á liðsheild, trausti og þrautseigju. Sú menning gerir okkur betur í stakk búin til að takast á við örar breytingar og flókin verkefni og er jafnframt undirstaða þess góða árangurs sem við höfum náð. Við höfum undanfarið horft til þess að ráða starfsfólk með fjölbreyttari bakgrunn í tækni en tíðkaðist hjá okkur, gagngert til að geta myndað sterkari teymi og hannað betri lausnir.“ Skemmtilegt afmælisár framundan Umhverfismál eru stjórnendum og eigendum fyrirtækisins hugleikin og segir Eva starfsfólk Raftákns vera með mikla reynslu af því að aðstoða stórnotendur orku við að bæta orkunýtingu og fylgjast með orkunotkun sinni gegnum stjórnkerfi sem við hönnum og forritum. „Jafnframt fylgjumst við vel með nýjum orkusparandi lausnum sem koma reglulega fram á sjónarsviðið og tökum þær inn í hönnun fyrir viðskiptavini okkar þar sem það er mögulegt. Góð hönnun sem tekur jafnframt tillit umhverfis- og orkusjónarmiða byggir á áratuga reynslu og þekkingu hönnuða.“ Og hún horfir björtum augum til framtíðarinnar. „Við ætlum okkur að vera leiðandi á sviði rafmagnshönnunar og iðnstýringa. Á afmælisárinu munum við blása til fjölbreyttra viðburða og bjóða viðskiptavinum, samstarfsaðilum og almenningi að skyggnast bak við tjöldin og kynnast vinnu okkar og starfsfólkinu.“
Framúrskarandi fyrirtæki 2025 Mest lesið Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Viðskipti innlent Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Viðskipti erlent Glæpamenn í fjarvinnu Atvinnulíf Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Viðskipti erlent Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Sjá meira