Handbolti

Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu

Sindri Sverrisson skrifar
Oddur Gretarsson fór á kostum í kvöld fyrir Þór.
Oddur Gretarsson fór á kostum í kvöld fyrir Þór. Þór Akureyri

Þórsarar sneru aftur til keppni af krafti í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir skelltu Stjörnunni í Garðabæ, 29-24.

Fyrrverandi landsliðshornamaðurinn Oddur Gretarsson fór fyrir Þórsliðinu í kvöld og skoraði tíu mörk úr aðeins ellefu skotum. Hann nýtti öll fjögur vítaskot sín í leiknum.

Þetta var aðeins þriðji sigur Þórs á tímabilinu og sá fyrsti síðan í október. Liðið náði með sigrinum að jafna Selfoss að stigum og komast upp fyrir Selfyssinga í 10. sæti. Liðin eru með níu stig, fjórum fyrir ofan ÍR sem situr eftir á botninum. 

Stjarnan og HK eru svo í 8. og 9. sæti með tíu stig hvort og bæði komin í fallbaráttu. Aðeins neðsta liðið fellur þó beint niður en liðið í næstneðsta sæti þarf að fara í umspil með liðum úr næstefstu deild.

Þórsarar voru í miklu stuði í kvöld og höfðu náð sjö marka forskoti þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik, 17-10. Munurinn varð mestur níu mörk í seinni hálfleik og voru heimamenn aldrei líklegir til að vinna upp forskot gestanna.

Oddur fór fyrir liði Þórs en Hafþór Már Vignisson var næstmarkahæstur með fimm mörk og Brynjar Hólm Grétarsson skoraði fjögur. Hjá Stjörnunni var Benedikt Marinó Herdísarson markahæstur með sex mörk en Hans Jörgen Ólafsson og Starri Friðriksson skoruðu fjögur mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×