Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. febrúar 2026 08:42 Mandelson virðist hafa leitað ítrekað til Epstein varðandi einkalíf sitt og meðal annars beðið hann um að miðla málum milli sín og eiginmanns síns. Getty/Jonathan Brady Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa hafið rannsókn á framgöngu stjórnmálamannsins Peter Mandelson, sem er grunaður um að hafa lekið opinberum gögnum og viðkvæmum upplýsingum til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Mandelson, þá viðskiptamálaráðherra, er meðal annars grunaður um að hafa lekið upplýsingum um samtöl ráðamanna í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.
Birting nýjustu Epstein-skjalanna hefur varpað ljósi á náin samskipti Mandelson og Epstein, meðal annars greiðslur til eiginmanns Mandelson. Mandelson var látinn hætta sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum í fyrra vegna tengsla sinna við Epstein og sagði sig úr Verkamannaflokknum og Lávarðadeildinni í kjölfar birtingar skjalasafnsins á dögunum. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur af kollegum sínum, meðal annars Gordon Brown, sem var forsætisráðherra í efnahagshruninu. Samkvæmt Guardian verður Mandelson yfirheyrður, auk þess sem teknar verða skýrslur af Brown og öðrum sem störfuðu með Mandelson á þeim tíma sem hann átti í samskiptunum við Epstein. Þá má leiða líkur að því að lögregluyfirvöld muni fara fram á að fá afrit af samskiptunum, óritskoðuðum, frá Bandaríkjunum. Gögnin sem birt hafa verið vestanhafs sýna meðal annars samskipti Epstein og Mandelson, þar sem fyrrnefndi var að forvitnast um niðurstöður kosninganna í Bretlandi árið 2010. Mandelson svaraði á þann veg að hann og hans menn vonuðust til þess að enginn flokkur fengi meirihluta. Ef ekki, hið minnsta vel vöxnum karlmanni. Svarið skilst ekki nema á ensku. „We are praying for a hung parliament. Alternatively, a well hung young man,“ svaraði þáverandi ráðherrann Epstein. Mandelson virðist hafa leitað til Epstein bæði varðandi persónuleg málefni og fjármál. „Þarf að tala, er ringlaður,“ skrifaði Mandelson til Epstein árið 2009. „Hvar ertu? Ég sakna þín.“ Sama ár lak hann upplýsingum um fyrirætlanir stjórnvalda í efnahagsmálum til vinar síns og virðist hafa upplýst hann um að Brown hygðist segja af sér áður en það var gert opinbert. Þá virðist hann hafa veitt Epstein upplýsingar um björgunarpakka til handa Evrópuríkjum í kjölfar hrunsins. Mandelson var áður ráðgjafi Robert Maxwell, föður Ghislaine Maxwell, sem afplánar nú dóm fyrir ýmis brot tengd Epstein. Hann var kynntur fyrir Epstein eftir aldamót, í sumarhúsi Lynn Forester de Rothschild á Martha's Vineyard. Mandelson var einn af þeim sem skrifuðu í alræmda afmælisbók Epstein þegar síðarnefndi varð fimmtugur. Þar lýsti hann honum sem „sínum besta vini“.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira