Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2026 22:12 Freyr Alexandersson, þjálfarei Brann, fagnaði í leikslok þrátt fyrir tap á móti Sturm Graz í kvöld. Getty/Jurij Kodrun Fjögur Íslendingalið komust áfram í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en lokaumferðin fór fram í kvöld. Midtjylland, Lille, Panathinaikos og Brann verða með þegar úrslitakeppnin fer fram en þrjú þeirra síðastnefndu fara í umspilið um sæti í sextán liða úrslitum.
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann töpuðu 1-0 á móti Sturm Graz og voru á leiðinni úr keppni þegar Stuttgart kom þeim til bjargar með því að vinna Young Boys 3-2 á sama tíma. Chema Andres skoraði sigurmark Stuttgart á 90. mínútu og það felldi svissneska liðið úr keppni og kom Brann upp í 24. og síðasta sætið. Lille komst áfram með 1-0 sigri á þýska liðinu Freiburg. Olivier Giroud skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á annarri mínútu í uppbótartíma. Hákon Arnar Haraldsson lék allan leikinn en Lille var manni fleiri síðustu sextán mínúturnar. Lille fékk tólf stig og endaði í átjánda sæti. Midtjylland kórónaði frábæra Evrópukeppni og tryggðu sér þriðja sætið í deildinni með 2-0 heimasigri á króatíska félaginu Dinamo Zagreb. Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland og hélt hreinu. Aral Simsir (á 49. mínútu) og Victor Bak (á 75. mínútu) skoruðu mörk liðsins. Lyon varð í efsta sætinu og Aston Villa tryggði sér annað sætið með 3-2 endurkomusigri á Salzburg. Salzburg komst í 2-0 en Morgan Rogers og Tyrone Mings jöfnuðu metin og Jamaldeen Jimoh skoraði sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok. Sverrir Ingi Ingason og félagar í Panathinaikos gerðu 1-1 jafntefli við Roma á heimavelli. Sverrir var í miðri vörninni og Vicente Taborda skoraði mark liðsins á 58. mínútu. Roma missti Gianluca Mancini af velli með rautt spjald á 15. mínútu en tókst að jafna metin með marki Jan Ziolkowski á 80. mínútu. Panathinaikos endaði í 20. sætinu. Roma tryggði sig beint inn í sextán liða úrslitin með þessu jöfnunarmarki. Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson voru í byrjunarliði Malmö sem tapaði 2-1 á heimavelli á móti Genk en sænska landsliðið átti ekki möguleika á því að komast áfram. Nottingham Forest vann 4-0 heimasigur á Ferencvaros. Fyrsta markið var sjálfsmark en Igor Jesus skoraði síðan tvö mörk og það síðasta skoraði James McAtee úr víti. Forest endaði í þrettánda sæti. Lyon, Aston Villa, Midtjylland, Real Betis, Porto, Freiburg og Roma tóku átta fyrstu sætin sem skila þeim fram hjá umspilinu og beint inn í sextán liða úrslitin.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Íslenski boltinn Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino kom út af neyðarfundinum með afsökunarbeiðni og hótun „Það er skellur“ FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Sjá meira