Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. janúar 2026 08:02 Omar hélt áfram ræðu sinni þegar hún hafði jafnað sig eftir atvikið. Vökvinn er sagður hafa lyktað eins og edik. Getty/Brandon Bell Maður réðist að þingkonunni Ilhan Omar á íbúafundi í Minneapolis í gærkvöldi og sprautaði á hana óþekktu og illa lyktandi efni. Maðurinn var yfirbugaður af öryggisvörðum og Omar hélt áfram með ræðu sína.
Ef marka má New York Times virðist viðstöddum hafa brugðið illa við árásinni en Omar hefur ítrekað verið skotspónn Donald Trump Bandaríkjaforseta í gegnum tíðina, sem hefur meðal annars sakað hana um að hata Bandaríkin. Raunar hafði hann skömmu fyrir árásina gagnrýnt hana á kosningafundi í Iowa, þar sem hann fór einnig illum orðum um Sómalíu, þar sem Omar fæddist. I am deeply disturbed to learn that Rep. Ilhan Omar was attacked at a town hall today. Regardless of how vehemently I disagree with her rhetoric - and I do - no elected official should face physical attacks. This is not who we are.pic.twitter.com/2kNUqcnAb8— Rep. Nancy Mace (@RepNancyMace) January 28, 2026 Maðurinn lét til skarar skríða eftir að Omar kallaði eftir því að innflytjendastofnunin ICE, sem hefur verið í fararbroddi í afar umdeildum aðgerðum stjórnvalda í Minneapolis og víðar, yrði lögð niður og heimavarnaráðherrann Kristi Noem látin fara. Omar komst augljóslega úr jafnvægi en biðlaði til viðstaddra um að gefa sér tíu mínútur til að jafna sig og svo myndi hún halda áfram. „Ég bið ykkur. Ekki leyfa þeim að stela sviðsljósinu.“ Þá sagði hún þegar hún hélt áfram: „Þetta er veruleikinn sem fólk eins og þessi ljóti maður skilur ekki: Við erum Minnesota-sterk og við munum standa óbeygð gagnvart hverju sem þeir taka upp á gegn okkur.“ I’m ok. I’m a survivor so this small agitator isn’t going to intimidate me from doing my work. I don’t let bullies win. Grateful to my incredible constituents who rallied behind me. Minnesota strong.— Ilhan Omar (@IlhanMN) January 28, 2026 Maðurinn hefur verið nafngreindur sem Anthony J. Kazmierczak, 55 ára. Rannsókn stendur yfir á atvikinu. Árásin hefur verið foræmd af Jacob Frey, borgarstjóra Minneapolis, og fleiri stjórnmálamönnum. Sumir stuðningsmanna Trump hafa hins vegar haldið því fram á samfélagsmiðlum að árásin hafi verið sviðsett.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira