Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2026 13:02 Thierno Barry jafnar metin í 1-1 fyrir Everton gegn Leeds United. getty/Simon Stacpoole Eftir afar erfiða byrjun á tímabilinu hefur franski framherjinn Thierno Barry fundið fjölina sína með Everton. Hann skoraði jöfnunarmark liðsins gegn Leeds United í eina leik gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 1-1.
Leeds var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik á Hill Dickinson leikvanginum í gær og leiddi, 0-1, að honum loknum. James Justin skoraði markið á 28. mínútu eftir sendingu frá Antoni Stach. Dominic Calvert-Lewin var hársbreidd frá því að koma gestunum í 0-2 gegn sínu gamla liði en skaut í stöng. Everton sótti í sig veðrið í seinni hálfleik og fór að ógna marki Leeds. Karl Darlow, markvörður gestanna, varði frá Barry en hann kom engum vörnum við þegar Frakkinn jafnaði metin á 76. mínútu. Hann setti boltann þá upp í þaknetið eftir fyrirgjöf frá Idrissa Gana Gueye. Senegalinn hefði getað tryggt Everton sigurinn undir lokin en skot hans fór í slána. Klippa: Everton - Leeds 1-1 Barry skoraði aðeins eitt mark í fyrstu átján leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu fimm deildarleikjum. Frá því í byrjun desember hafa aðeins Ollie Watkins, Calvert-Lewin og Erling Haaland skorað meira í ensku úrvalsdeildinni. Everton keypti Barry frá Villarreal fyrir 27 milljónir punda í sumar. Hann skoraði ellefu mörk í spænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Everton er í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Leeds í því sextánda. Mörkin úr leik Everton og Leeds má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Leeds United Everton FC Tengdar fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Thierno Barry sá til þess að Everton náði jafntefli gegn Leeds United, 1-1, á heimavelli í lokaleik 23. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 26. janúar 2026 21:59 Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira
Barry bjargaði stigi fyrir Everton Thierno Barry sá til þess að Everton náði jafntefli gegn Leeds United, 1-1, á heimavelli í lokaleik 23. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 26. janúar 2026 21:59