Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 26. janúar 2026 07:46 Það snjóaði líka hressilega í Danmörku fyrr í þessum mánuði. EPA/HENNING BAGGER Fjölda flug- og lestarferða hefur verið aflýst í Danmörku í dag og á sumum stöðum um landið er fólk sem það getur hvatt til að vinna heima þar sem það á við vegna snjóstorms sem gengur yfir landið í dag. Snjórinn byrjaði að falla í suðurhluta landsins í morgun en búist er við að veðrið gangi yfir stóran hluta landsins þegar líður á daginn.
Búist er við að sumstaðar gæti snjóað samfellt í allt að tólf klukkutíma í dag, og fallið gæti á milli tíu til tuttugu sentímetra djúpur snjór samkvæmt veðurspá danska ríkisútvarpsins, DR. Veðurviðvörun vegna snjókomu hefur verið gefin út sem gildir frá klukkan fjögur síðdegis að staðartíma til um klukkan sjö í fyrramálið. Þegar hefur 24 ferðum frá flugvellinum í Kaupmannahöfn verið aflýst í dag vegna veðurs samkvæmt upplýsingum frá flugvellinum. Flestar ferðirnar sem um ræðir áttu að fara til Þýskalands í dag, meðal annars Frankfurt, Hamborgar, Berlín og Hannover. Snjókoman virðist þó ekki hafa áhrif á ferðir til Íslands í dag, en þegar þetta er skrifað eru tvær ferðir Icelandair enn á áætlun frá Kaupmannahöfn í dag. Þá hafa verið gerðar ráðstafanir á flugvellinum til að unnt verði að moka snjó af flugbrautum. Lögreglan á Suður-Jótlandi hefur hvatt þá sem geta til að vinna heima, einkum í Sønderborg og Aabenraa þar sem allt að tuttugu sentímetra djúpur snjór gæti fallið. Þeir sem hins vegar hafi ekki tök á að vinna heima eru hvattir til að gera ráð fyrir lengri ferðatíma til og frá vinnu þar sem umferð gæti raskast. Þá hefur DSB, sem rekur lestarkerfi landsins, fækkað ferðum til og frá Sjálandi í dag vegna snjókomunnar, þar á meðal lestarferðum á milli Kaupmannahafnar, Óðinsvéum, Kalundborgar, Hróaskeldu og Helsingør.
Danmörk Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira