Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. janúar 2026 10:01 Freyr ræddi við blaðamenn fyrir leik Brann og Midtjylland. Oguz Yeter/Anadolu via Getty Images Freyr Alexandersson er orðinn mjög þreyttur á því að fá spurningar um hvort einn leikmaður Brann sé á förum frá liðinu.
Freyr stýrir Brann í Evrópudeildinni gegn danska liðinu Midtjylland í kvöld, og líkt og fyrir síðustu leiki var hann spurður hvort Emil Kornvig væri á förum, en þessi sóknarsinnaði miðjumaður hefur verið orðaður við skipti til Widzew Lodz í Póllandi. „Það hafa verið alls konar sögusagnir á sveimi síðustu tvær vikur um Emil. Ég ætla ekki að tjá mig meira um þetta. Hann mun spila leikinn [gegn Midjtylland]. Það er það eina sem skiptir mig máli.“ Blaðamennirnir á blaðamannafundinum slepptu Frey samt ekki svo auðveldlega og spurðu hvort sá leikur yrði hans síðasti fyrir félagið. „Hann mun spila leikinn á morgun. Svo sjáum við til hvað gerist“ sagði Freyr. Freyr hefur þurft að svara mörgum svona spurningum síðustu vikur, líkt og margir aðrir þjálfarar þurfa að gera þegar félagaskiptaglugginn er opinn. Fjölmiðlafárið í kringum Brann þykir hins vegar alveg sérlega mikið á mælikvarða Norðurlandanna. Brann er búið að selja tvo leikmenn, Japhet Sery Larsen og Eivind Helland, og Jacob Kirk Lungi Sørensen og fleiri eru orðaðir við brottför. Freyr segir þetta hafa áhrif á undirbúninginn. „Ég held að Lungi og hinir strákarnir finni ekki svo mikið fyrir þessu. En fyrir mig hafa þetta verið margir klukkutímar í símanum og á fundum og svoleiðis. Þjálfari sem er á leið í Evrópudeildina vill auðvitað ekki sjá leikmenn selda, en við gátum ekki sagt nei við Jacob og Eivind.“
Norski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira