„Það er mjög slæm minning“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 09:32 Bjarki Már ætlar sér ekki að tapa í enn eitt skiptið fyrir Ungverjum. vísir/vpe „Það er góð stemning en það er stutt á milli í þessu. Það er bara einn tapleikur og þá er allt orðið hundleiðinlegt,“ segir Bjarki Már Elísson en hann viðurkennir fúslega að hann sé orðinn þreyttur á að mæta Ungverjum. „
Mjög þreyttur. Sérstaklega af því ég spila í Ungverjalandi og það er þreytt að koma aftur þangað eftir mót með tap á bakinu gegn þeim. Við ætlum að breyta því í ár.“ Klippa: Hefndarhugur í íslenska liðinu Tapið gegn Ungverjum í Kristianstad fyrir þremur árum er með þeim grátlegri hjá liðinu síðustu ár. Þá kastaði liðið frá sér unnum leik. „Það situr ekkert í mér en það er vond minning. Maður verður pirraður er maður hugsar um leikinn því við vorum með tögl og haldir eins og sagt er. Förum svo með þetta í seinni hálfleik og ég persónulega líka því ég klikka í lokin. Það er mjög slæm minning. Handboltinn er bara svona. Það er áfram veginn.“ Einhverjir velta fyrir sér hvort töpin leggist á sál leikmanna liðsins en hvernig sér Bjarki þetta fyrir sér? „Ég held að sé engin hræðsla. Við höfum tröllatrú á okkur sjálfum. Hefndarhugur kannski að einhverju leyti. Okkur langar núna að vinna þá í eitt skipti fyrir öll. Lykilatriði í þessum leik er að halda kúlinu. Þetta verður þolinmæðisverk og þetta verður erfiðasti leikurinn í riðlinum,“ segir Bjarki og bætir við að það verði að halda haus þó það gefi á bátinn í leiknum. „Við höfum ekki lent í alvöru mótlæti til þessa en ég er nokkuð viss um að það komi í þessum leik. Það verður prófsteinn á alla að glíma við það. Verðum að halda yfirvegun og halda plani. Það hlakka allir til í að spila aftur í þessari stemningu og við ætlum að reyna að njóta þess.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira