Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2026 14:12 Mike Fincke, annar bandarísku geimfaranna, fær aðstoð við að stíga út úr geimferjunni sem flutti hann og þrjá aðra til jarðar. Hann hafði dvalið í Alþjóðlegu geimstöðinni frá því í ágúst. AP/NASA Geimferja með hluta af áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar lenti í Kyrrahafi utan við strendur Kaliforníu í nótt. Heimferð áhafnarinnar var flýtt vegna veikinda eins geimfaranna fjögurra.
Geimfararnir áttu ekki að koma heim fyrr en eftir mánuð en bandaríska geimvísindastofnunin NASA ákvað að flýta heimferðinni vegna veikinda eins þeirra. Hvorki hefur verið greint frá því hver geimfaranna veiktist né hvað hrjáir hann. NASA vísar til friðhelgis einkalífs geimfaranna og segir að ekki hafi verið um neyðartilvik að ræða. Geimgöngu bandarísku geimfaranna tveggja í áhöfninni var aflýst vegna veikindanna í síðustu viku. „Það er svo gott að koma heim,“ sagði Zena Cardman, stjórnandi geimferju fyrirtækisins SpaceX sem flutti geimfarana heim frá geimstöðinni við komuna til jarðar. Þetta er í fyrsta skipti sem NASA styttir geimferð vegna veikinda geimfara. Þrír geimfarar eru nú eftir í geimstöðinni; tveir Rússa og einn Bandaríkjamaður.
Alþjóðlega geimstöðin Geimurinn Bandaríkin Tengdar fréttir Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur ákveðið að flytja áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar til jarðar á næstu dögum, mánuði á undan áætlun, vegna alvarlegra veikinda eins geimfaranna. Þetta er í fyrsta skipti sem geimleiðangur er styttur vegna veikinda. 9. janúar 2026 12:03 Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Bandaríska geimvísindastofnunin NASA skoðar nú möguleikann að flytja áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar heim mörgum mánuðum á undan áætlun vegna veikinda eins geimfaranna. Hann er sagður í stöðugu ástandi en ekki hefur verið greint frá því hvað hrjáir hann. 8. janúar 2026 14:05 Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Sjá meira
Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur ákveðið að flytja áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar til jarðar á næstu dögum, mánuði á undan áætlun, vegna alvarlegra veikinda eins geimfaranna. Þetta er í fyrsta skipti sem geimleiðangur er styttur vegna veikinda. 9. janúar 2026 12:03
Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Bandaríska geimvísindastofnunin NASA skoðar nú möguleikann að flytja áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar heim mörgum mánuðum á undan áætlun vegna veikinda eins geimfaranna. Hann er sagður í stöðugu ástandi en ekki hefur verið greint frá því hvað hrjáir hann. 8. janúar 2026 14:05