Alonso látinn fara frá Real Madrid Aron Guðmundsson skrifar 12. janúar 2026 17:23 Xabi Alonso er ekki lengur þjálfari Real Madrid Xabi Alonso hefur verið vikið úr starfi þjálfara spænska stórveldisins Real Madrid í fótbolta. Félagið greinir frá þessu í yfirlýsingu og greindi stuttu seinna frá því að nýr þjálfari hefði verið ráðinn.
Í fyrri yfirlýsingu Real Madrid segir að ákvörðunin um að slíta samstarfinu við Alonso sé sameiginleg en hún er tekin degi eftir að Real Madrid laut í lægra haldi gegn erkifjendum sínum í Barcelona í úrslitaleik spænska ofurbikarsins. Stuttu eftir þá yfirlýsingu birtist önnur yfirlýsing á vefsíðu Real Madrid þar sem greint frá því að fyrrverandi liðsfélagi Alonso hjá bæði Real Madrid, Liverpool og spænska landsliðinu, Álvaro Arbeloa, hefði verið ráðinn nýr þjálfari liðsins. Arbeloa hefur frá því um mitt síðasta ár þjálfað B-lið Real Madrid, Castilla. Fyrir það hafði Arbeloa starfað með yngri liðum Real Madrid frá árinu 2020. Álvaro Arbeloa er nýr þjálfari Real MadridVisir/Getty Arbeloa er, líkt og Alonso, fyrrverandi leikmaður Real Madrid. Hann spilaði með liðinu frá árinu 2009 til 2016 og lék 238 leiki fyrir þá hvítklæddu og vann átta titla, þar á meðal Meistaradeild Evrópu í tvígang. Alls spiluðu Xabi Alonso og Arbeloa saman 262 leiki á sínum atvinnumannaferli samkvæmt tölfræðisíðunni Transfermarkt með annað hvort Liverpool, Real Madrid eða spænska landsliðinu. Undanfarna mánuði hefur Alonso þótt afar valtur í sessi eftir brösótt gengi en liðið var á sínu fyrsta tímabili undir hans stjórn. Spánverjinn, sem var á sínum tíma leikmaður liðsins skilur við Real Madrid í 2.sæti spænsku úrvalsdeildarinnar þar sem liðið er með fjórum stigum minna en topplið Barcelona. Þá vermir Real Madrid sjöunda sæti Meistaradeildar Evrópu og er í góðum séns á að tryggja sér beint sæti í 16 liða úrslitin. Alonso tók við stjórnartaumunum hjá Real Madrid fyrir yfirstandandi tímabil eftir að hafa gert góða hluti með lið Bayer Leverkusen í Þýskalandi og skrifaði þá undir þriggja ára samning í Madríd. Undir stjórn Alonso varð Leverkusen tvöfaldur meistari í Þýskalandi árið 2024 og fór í gegnum deild- og bikar án þess að tapa leik.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira