Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2026 12:03 Alþjóðlega geimstöðin á braut um jörðina. AP/NASA Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur ákveðið að flytja áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar til jarðar á næstu dögum, mánuði á undan áætlun, vegna alvarlegra veikinda eins geimfaranna. Þetta er í fyrsta skipti sem geimleiðangur er styttur vegna veikinda.
Ekki hefur verið greint frá því hver geimfaranna er veikur né hvað hrjáir hann. Aðeins hefur verið staðfest að veikindin tengist ekki verunni í geimstöðinni og að ekki sé um meiðsli að ræða. Hætt var við fyrirhugaða geimgöngu tveggja bandarískra geimfara um borð í stöðinni vegna veikindanna í gær. Það eru þau Mike Fincke og Zena Cardman. Jared Isaacman, forstjóri NASA, tilkynnti í gær að dvöl fjögurra manna teymisins í svonefndri Áhöfn-11 í geimstöðinni yrði stytt vegna veikindanna. Auk Cardman og Fincke eru Japananinn Kimiya Yui og Rússinn Oleg Platonov hluti af áhöfninni. Annar bandarískur geimfari verður eftir í geimstöðinni ásamt tveimur Rússum en þeir komu saman í rússneskri Soyuz-geimferju í nóvember. „Þetta er ekki neyðarflutningur. Við leyfum heilsu geimfaranna alltaf að njóta vafans,“ sagði embættismaður NASA um ákvörðunina. James Polk, yfirlæknir NASA, segir að þetta sé í fyrsta skipti í sögu stofnunarinnar sem ákveðið hefur verið að stytta geimferð vegna veikinda. Geimfararnir fjórir sem stefna nú heim komu með geimferju SpaceX til stöðvarinnar í ágúst og áttu að dvelja þar í sex mánuði að minnsta kosti.
Alþjóðlega geimstöðin Geimurinn Bandaríkin Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira