Handbolti

Sakaður um niður­lægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“

Sindri Sverrisson skrifar
Didier Dinart hefur meðal annars stýrt Frakklandi að heimsmeistaratitli, eftir að afar farsælum leikmannaferli hans lauk.
Didier Dinart hefur meðal annars stýrt Frakklandi að heimsmeistaratitli, eftir að afar farsælum leikmannaferli hans lauk. Getty/Christina Pahnke

Franska handboltagoðsögnin Didier Dinart mun væntanlega aldrei snúa aftur á æfingar sem þjálfari franska liðsins Ivry. Leikmenn hafa sakað hann um að skapa eitrað andrúmsloft og beita þá niðurlægingu og áreitni.

„Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara hjá okkur lengur,“ hefur AFP eftir einum leikmanna Ivry.

Hinn 48 ára gamli Dinart hefur verið í veikindaleyfi frá því í sumar hjá Ivry en er samt áfram landsliðsþjálfari Svartfjallalands og því á leiðinni á EM í næsta mánuði.

Frönsku miðlarnir AFP og Le Parisien lýsa alvarlegri misklíð hjá Dinart og leikmönnum Ivry sem sagðir eru hafa neitað að mæta til æfinga þegar Dinart ætlaði að snúa úr veikindaleyfi 21. október. Þeir bera honum illa söguna, undir nafnleynd, og segja hann hafa skapað óviðunandi vinnuumhverfi. Mun félagið hafa hafið innanbúðarrannsókn á framferði hans.

Segir Dinart hafna ásökununum

Dinart er sannkölluð goðsögn í frönskum handbolta eftir alla sína titla með bæði félagsliðum og landsliði, og eftir að hann gerðist þjálfari stýrði hann Frakklandi til sigurs á HM árið 2017. Hann tók svo við Ivry árið 2023 (þegar Haukamaðurinn Darri Aronsson var leikmaður félagsins) en undir hans stjórn féll liðið úr efstu deild síðasta vor.

Hvorki Dinart né forráðamenn Ivry hafa viljað tjá sig um stöðuna en lögmaður Dinarts, Anthony Mottais, kemur honum til varna í Le Parisien og segir að í raun hafi verið brotið á þjálfaranum:

„Didier Dinart hafnar þessu öllu. Þessar yfirlýsingar í fjölmiðlum eru klaufaleg tilraun til að beina athyglinni frá þeim skrefum sem þegar hafa verið tekin fyrir vinnurétti í júlí,“ segir Mottais.

„Herra Dinart sakar vinnuveitanda sinn um vangoldin laun fyrir margra klukkustunda vinnu, auk andlegrar áreitni og gríðarlegs vinnuálags sem hefur leitt til til þess að heilsu hans hefur hrakað verulega,“ segir Mottais.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×