Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar 17. desember 2025 12:00 Af grein sem birtist á Vísi þann 12. desember má skilja að Faxaflóahafnir sf. hafi á einhvern hátt verið þátttakendur í eða ábyrgar fyrir samráði skipafélaganna í Sundahöfn á árunum 2008-2013. Það er rangt, enda koma hafnir landsins að engu nálægt viðskiptum skipafélaga við farmeigendur. Greinin kemur í kjölfar viðtals við bæjarstjóra Ölfuss á Bylgjunni þar sem hann lýsir óánægju vegna ætlunar ríkisisins að draga úr ríkisstyrkjum til þeirra hafna sem rétt eiga á slíku framlagi úr sjóðum skattgreiðenda. Hafnarbótasjóður – leikreglur sem þarf að skýra Hafnarbótasjóður styrkir framkvæmdir sem ekki eru taldar bera sig á hreinum viðskiptalegum forsendum og er sjóðurinn fjármagnaður skv. fjárlögum hvers árs. Rekstur hafna á Íslandi er samkeppnisrekstur og hafnalög eru skýr um að „óheimilt (sé) að styrkja með framlagi úr ríkissjóði framkvæmdir sem geta raskað samkeppni milli hafna“. Fjögur hafnafyrirtæki í eigu sveitarfélaga eiga ekki rétt á framlagi úr sjóðnum og byggja innviði sína alfarið fyrir sjálfsaflafé. Þeirra á meðal eru Faxaflóahafnir sf., enda afkoma félagsins sterk; þess gætt að ekki sé fjárfest umfram sýnilega þörf og sjálfsaflatekjur beri viðkomandi fjárfestingu. Markmið hafnarbótasjóðs er göfugt; að tryggja strandbyggðum landsins sem síðri möguleika hafa á að bera sig á viðskiptalegum forsendum, örugga tengingu við sjóinn svo hafsækið atvinnulíf fái skotið þar rótum. Hins vegar hefur við úthlutun úr sjóðnum skort á gagnsæi og er hér með skorað á Innviðaráðuneytið og Vegagerðina sem fara með rekstur hans, að bæta þar úr. Mikilvægt er að það takmarkaða fjármagn sem ríkið setur í sjóðinn rati til þeirra verkefna sem styðja markmið hans. Þorlákshöfn á framtíðina fyrir sér Í Faxaflóahöfnum stunda þrjú skipafélög reglulegar siglingar með vörur og í Þorlákshöfn tvö. Farmflytjandi á sv-horni landsins getur því sótt tilboð til fimm skipafélaga ætli hann að flytja farm til eða frá N-Evrópu. Það er mun betri staða en var á ofangreindur tímabili. Staðsetning Þorlákshafnar er á margan hátt hentug fyrir skipaflutninga enda siglingaleiðin til Evrópu nokkuð styttri en frá höfnum við Faxaflóa. Enginn vafi er á að Þorlákshöfn á framtíðina fyrir sér á viðskiptalegum forsendum. Höfundur er hafnarstjóri Faxaflóahafna .Slóðir: Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira - Vísir https://www.visir.is/k/e2defe80-a37c-4a5f-8b0c-0772f04ec4fd-1765354905564/fullyrda-ad-rikisstjornin-yti-undir-samkeppnishindranir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarmál Ölfus Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Af grein sem birtist á Vísi þann 12. desember má skilja að Faxaflóahafnir sf. hafi á einhvern hátt verið þátttakendur í eða ábyrgar fyrir samráði skipafélaganna í Sundahöfn á árunum 2008-2013. Það er rangt, enda koma hafnir landsins að engu nálægt viðskiptum skipafélaga við farmeigendur. Greinin kemur í kjölfar viðtals við bæjarstjóra Ölfuss á Bylgjunni þar sem hann lýsir óánægju vegna ætlunar ríkisisins að draga úr ríkisstyrkjum til þeirra hafna sem rétt eiga á slíku framlagi úr sjóðum skattgreiðenda. Hafnarbótasjóður – leikreglur sem þarf að skýra Hafnarbótasjóður styrkir framkvæmdir sem ekki eru taldar bera sig á hreinum viðskiptalegum forsendum og er sjóðurinn fjármagnaður skv. fjárlögum hvers árs. Rekstur hafna á Íslandi er samkeppnisrekstur og hafnalög eru skýr um að „óheimilt (sé) að styrkja með framlagi úr ríkissjóði framkvæmdir sem geta raskað samkeppni milli hafna“. Fjögur hafnafyrirtæki í eigu sveitarfélaga eiga ekki rétt á framlagi úr sjóðnum og byggja innviði sína alfarið fyrir sjálfsaflafé. Þeirra á meðal eru Faxaflóahafnir sf., enda afkoma félagsins sterk; þess gætt að ekki sé fjárfest umfram sýnilega þörf og sjálfsaflatekjur beri viðkomandi fjárfestingu. Markmið hafnarbótasjóðs er göfugt; að tryggja strandbyggðum landsins sem síðri möguleika hafa á að bera sig á viðskiptalegum forsendum, örugga tengingu við sjóinn svo hafsækið atvinnulíf fái skotið þar rótum. Hins vegar hefur við úthlutun úr sjóðnum skort á gagnsæi og er hér með skorað á Innviðaráðuneytið og Vegagerðina sem fara með rekstur hans, að bæta þar úr. Mikilvægt er að það takmarkaða fjármagn sem ríkið setur í sjóðinn rati til þeirra verkefna sem styðja markmið hans. Þorlákshöfn á framtíðina fyrir sér Í Faxaflóahöfnum stunda þrjú skipafélög reglulegar siglingar með vörur og í Þorlákshöfn tvö. Farmflytjandi á sv-horni landsins getur því sótt tilboð til fimm skipafélaga ætli hann að flytja farm til eða frá N-Evrópu. Það er mun betri staða en var á ofangreindur tímabili. Staðsetning Þorlákshafnar er á margan hátt hentug fyrir skipaflutninga enda siglingaleiðin til Evrópu nokkuð styttri en frá höfnum við Faxaflóa. Enginn vafi er á að Þorlákshöfn á framtíðina fyrir sér á viðskiptalegum forsendum. Höfundur er hafnarstjóri Faxaflóahafna .Slóðir: Ríkisstjórn grefur undan samkeppni, þú munt borga meira - Vísir https://www.visir.is/k/e2defe80-a37c-4a5f-8b0c-0772f04ec4fd-1765354905564/fullyrda-ad-rikisstjornin-yti-undir-samkeppnishindranir
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar