„Skrýtið að spila þennan leik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. nóvember 2025 19:20 Elín Rósa í leik kvöldsins. Vísir/Anton Brink Elín Rósa Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-Lippe, segir það hafa verið skrýtna tilfinningu að mæta sínu gamla félagi í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld.
Elín Rósa lék með Blomberg-Lippe er liðið heimsótti Val í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Leiknum lauk með 22-22 jafntefli, en Blomberg-Lippe vann fyrri leik liðanna með þrettán marka mun og er því á leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á kostnað Vals. „Það var mjög skrýtið að spila þennan leik. Ég veit ekki alveg hvernig mér á að líða og hvernig mér leið í leiknum, en það er alltaf gaman að koma heim á Hlíðarenda,“ sagði Elín Rósa í leikslok. Hún viðurkennir að mögulega hafi kæruleysi komið yfir Blomberg-Lippe fyrir leik kvöldsins eftir þrettán marka sigur í fyrri leiknum. „Það var allavega þannig í dag. Það á ekkert að vera þannig, en við sýndum bara ekki nógu góða spilamennsku í dag. Svona er þetta bara.“ Hún hrósar þó Valsliðinu fyrir að sýna góðan karakter og snúa dæminu við eftir að hafa lent fimm mörkum undir í fyrri hálfleik. „Þær eru með frábæra leikmenn og ég náttúrulega veit það best af öllum hérna. Það er kannski erfitt að mótivera þær þegar við vinnum með þrettán á heimavelli. En það er bara geggjað að spila á móti þeim og þær eru með eitt af bestu liðunum hérna á Íslandi.“ „Þær eru bara að taka næsta skref með því að taka þátt í þessari keppni. Nú eru þær að spila á móti liðum, eins og okkur, úr þýsku Bundesligunni. Það er góð reynsla fyrir lið hérna heima að taka þátt í Evrópukeppni, hvort sem það er í Evrópubikarnum eða Evrópudeildinni. Þetta er frábært skref fyrir þær að fara í Evrópudeildina núna,“ sagði Elín Rósa að lokum.
Valur Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira