Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Chicco á Íslandi 14. nóvember 2025 11:30 Chicco bóndabærinn talar íslensku og kennir börnum orð, tölur og litina í gegnum leik og söng. Það eru ekki bara skáldin sem fagna degi íslenskrar tungu á sunnudaginn 16. nóvember heldur líka kindur, kýr og bangsar. Í bóndabæ Chicco tala dýrin nefnilega á hreinni íslensku og kenna börnum orð, tölur og litina í gegnum leik og söng. Óhætt er að segja að Chicco bóndabærinn hafi slegið í gegn hjá litlum málfræðingum. „
Það var draumur minn að íslensk börn gætu leikið sér með talandi leikfang sem skilur og svarar þeim á þeirra eigin tungumáli,“ segir Sigríður Fanney Gunnarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Gullskóga sem er umboðsaðili Chicco á Íslandi. „Eftirþví sem ég best veit var bóndabærinn fyrsta þroskaleikfangið hér á landi sem bregst við leik barnsins á íslensku.“ Bóndabærinn er frá ítalska framleiðandanum Chicco, sem er þekktur fyrir vönduð þroskaleikföng. En íslenska útgáfan hefði aldrei orðið að veruleika nema fyrir frumkvæði Sigríðar. „Þegar ég hafði samband við Chicco voru þau ekki viss um að íslenskan væri þess virði því það eru jú ekki svo margir sem tala hana,“ segir hún og hlær. „En ég lofaði að sjá um allt sjálf ef þau myndu leiðbeina mér. Ég fékk íslenskan leiklistarnema til að tala inn á bóndabæinn og útkoman varð frábær. Það má því segja að þetta hafi verið mín leið til að leggja íslenskunni lið á skemmtilegan hátt.“ Nú talar bóndabærinn yfir 50 orð, setningar, hljóð og lög og börn geta valið hvort hann tali á íslensku eða ensku og þannig kennir leikfangið börnum m.a. að þekkja litina, tölurnar og dýrin á bóndabænum með því að spyrja börnin einfaldra spurninga. Hægt er að stilla erfiðleikastigið á bóndabænum og geta því yngri börn fengið auðveldari spurningar heldur en þau eldri. „Börn læra svo mikið í gegnum leik og það er dýrmætt að þau fái að heyra og nota íslensku í því samhengi,“ segir Sigríður. „Þegar barnið ýtir á kúna og heyrir „muuu“ eða togar í sólina og hlustar á söng, þá tengist tungumálið gleði og leik. Það er besta leiðin til að styrkja íslenskuna.“ Í tilefni dags íslenskrar tungu hvetur Sigríður foreldra til að taka tungumálið með í leikinn. „Hvort sem það er með bóndabænum, bók eða söng þá er allt sem kveikir íslenskt tal og hlátur hjá börnum gulls ígildi,“ segir hún. Og ef einhver vill sjá bóndabæinn í eigin persónu (eða heyra hann segja „Hæ, hæ!“) þá er hann m.a. til sölu í Dótabúðinni, Leikfangalandi, Vaski á Egilsstöðum, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Borgfirðinga, Lyfjavali og Kaupfélag Vestur-Húnvetninga.
Börn og uppeldi Íslensk tunga Tækni Krakkar Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira