Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2025 13:18 Viggó Kristjánsson hefur komið með beinum hætti að samtals 106 mörkum í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. getty/Harry Langer Viggó Kristjánsson leiddi Erlangen til sigurs á Eisenach, 24-23, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Seltirningurinn hefur skorað grimmt að undanförnu.
Viggó skoraði tólf mörk í sigrinum nauma hjá Erlangen í gær. Sex marka hans komu úr vítaköstum. Í síðustu þremur leikjum Erlangen hefur Viggó skorað samtals 32 mörk. Hann skoraði tíu mörk í 33-26 sigri á Wetzlar og sömuleiðis tíu mörk í tapi fyrir Flensburg, 36-30. Viggó er í 5. sæti yfir markahæstu leikmenn þýsku úrvalsdeildarinnar með 69 mörk í níu leikjum, eða 7,7 mörk að meðaltali í leik. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur einnig gefið 37 stoðsendingar í þýsku deildinni á tímabilinu en aðeins fimm hafa gefið fleiri. Tveir þeirra leika með Viggó í landsliðinu. Haukur Þrastarson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, trónir á toppi stoðsendingalistans með 52 slíkar og Gísli Þorgeir Kristjánsson, sem spilar fyrir Evrópumeistara Magdeburg, er í 5. sætinu með 38 stoðsendingar. Maðurinn sem Viggó deilir stöðu hægri skyttu með í landsliðinu, Ómar Ingi Magnússon, er í 3. sæti á listanum yfir markahæstu leikmenn þýsku deildarinnar. Hann hefur skorað áttatíu mörk í níu leikjum. Erlangen keypti Viggó frá Leipzig um síðustu áramót. Hann átti hvað stærstan þátt í að Erlangen bjargaði sér frá falli á síðasta tímabili. Liðið vann síðustu þrjá leiki sína og endaði einu stigi fyrir ofan fallsæti. Betur hefur gengið hjá Erlangen á þessu tímabili. Liðið er í 11. sæti deildarinnar með tíu stig, sjö stigum frá fallsæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira