Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ VÍS 24. október 2025 12:28 „Við viljum efla umræðuna um mikilvægi öryggis og forvarna," segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS Öll fyrirtæki á landinu geta nú í fyrsa sinn sótt um Forvarnaverðlaun VÍS, óháð því hvar þau eru tryggð. „
Öryggi er samfélagslegt verkefni, ekki samkeppnismál. Það er verkefni fyrirtækja, stjórnvalda og samfélagsins í heild að tryggja að allir komist heilir heim. „Við viljum efla umræðuna um mikilvægi öryggis og forvarna og bjóðum því öllum fyrirtækjum og stofnunum landsins til þess að sækja um verðlaunin,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2010 og eru orðin veigamikill vettvangur til að vekja athygli á framsýnu og öflugu öryggis- og forvarnarstarfi á íslenskum vinnustöðum. Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum: Annars vegar fyrir fyrirtæki með færri en 100 starfsmenn og hins vegar fyrir fyrirtæki með 100 starfsmenn eða fleiri. Við val er horft til heildarsýnar á öryggisstarf: m.a. fræðslu, viðbragðsáætlana, forvarnarvinnu og þátttöku starfsfólks. Guðný leggur áherslu á að sterk öryggismenning skili sér í betri vellíðan starfsfólks. „Þetta snýst ekki bara um kerfi og skýrslur, heldur um fólk og öryggistilfinningu þeirra. Á endanum skilar sér það í betri vellíðan og meiri árangri í starfi.“ Hægt er að sækja um forvarnaverðlaunin á vis.is til 30. október nk. Verðlaunin verða veitt á Forvarnaráðstefnu VÍS sem haldin í Hörpu verður þann 12. mars 2026. Ráðstefnan verður tileinkuð umferðaröryggi þar sem boðið verður upp á erindi, reynslusögur og innsýn í öflugt öryggisstarf fyrirtækja, auk umfjöllunar um þær áskoranir sem steðja að íslensku samfélagi á þessu sviði.
Tryggingar Mannauðsmál Mest lesið Róbert hættir sem forstjóri Alvotech Viðskipti innlent Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Viðskipti innlent Icelandair setur nokkur met Viðskipti innlent Lögmenn frá Juris til LEX Viðskipti innlent Nauðungarsala á Hlemmi Square Viðskipti innlent 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Atvinnulíf Fréttamaður spreytir sig á græjunni sem allir eru að tala um Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira