Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. október 2025 10:58 Árnastofnun er til húsa í Eddu við Suðurgötu en hér má sjá dæmi um leit í orðabókinni nýju. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gerir í dag aðgengilega nýja Íslensk-enska veforðabók. Hún er tíunda tvímálaorðabókin sem stofnunin hefur birt undanfarin fjórtán ár.
Orðabókin telur 54 þúsund uppflettiorð, 33 þúsund málnotkunardæmi og tíu þúsund orðasambönd. Upplesinn framburður fylgir öllum uppflettiorðunum sem nýtist einkum erlendum notendum sem eru að læra íslensku. Orðabókin er ókeypis og birtist eingöngu á vefnum, enska.arnastofnun.is og á vefgáttinni m.is. Aðalritstjóri orðabókarinnar er Þórdís Úlfarsdóttir og ritstjórar ensku eru Max Naylor og Björn Halldórsson. Þá kom Larissa Kayser einnig að þýðingarvinnunni og verkefnisstjóri er Halldóra Jónsdóttir. Vinna við Íslensk-enska veforðabók hófst árið 2021 sem rannsóknarverkefni þar sem prófaðar voru sjálfvirkar aðferðir til að flýta þýðingarvinnunni og í framhaldinu fengust styrkir til að halda verkinu áfram. Byggir á grunni íslensk-skandínavískrar veforðabókar Grundvöllurinn að verkefninu er íslensk-skandinavíska veforðabókin ISLEX sem opnuð var á vefnum haustið 2011 og tengdi íslensku við dönsku, sænsku, nýnorsku og norskt bókmál. Síðar bættust við finnska og færeyska og síðan þá hefur íslenski orðagrunnurinn verið stækkaður, endurskoðaður og fleiri orðabækur hafa fylgt í kjölfarið. Næsta veforðabók, Lexía, hefur að geyma íslensk-franska og íslensk-þýska orðabók (lexia.arnastofnun.is) og nýlega gaf stofnunin út Íslensk-pólska veforðabók (polska.arnastofnun.is). Verkefnið hefur fengið fjárveitingu frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu auk styrkja frá Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur á vegum Háskóla Íslands
Íslensk tunga Íslensk fræði Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira