Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Mobility 18. október 2025 10:01 Mobility býður upp á flestar lausnir fyrir hreyfiskerta og leggur sérstaka áherslu á nýjungar og frumlegar vörur. Fjölskyldan sem rekur Mobility hefur kynnst AHC taugasjúkdómnum af eigin raun. F.v. Sigurður Hólmar framkvæmdastjóri, Unnur Iðjuþjálfi og Svanberg Sölustjóri. Í Urriðaholtinu í Garðabæ má finna fyrirtækið Mobility sem býður upp á fjölbreytt úrval hjálpartækja fyrir fólk með mismunandi þarfir, allt frá rafskutlum, þríhjólum og hjólastólum til göngugrinda, vinnustóla og baðhjálpartækja. „
Markmið okkar er einfalt að bæta lífsgæði fólks og gera daglegt líf auðveldara,“ segir Sigurður Hólmar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Mobility. Sigurður Hólmar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Mobility Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði úrpersónulegri reynslu. „Saga Mobility hófst þegar við, foreldrar Sunnu Valdísar, stóðum frammi fyrir því að finna viðeigandi hjálpartæki fyrir dóttur okkar sem greind er með AHC, einn erfiðasta taugasjúkdóm sem þekktur er. Vegna skorts á lausnum hér á landi urðum við að finna og flytja inn tækin sjálf,“ segir Sigurður. Fyrsta hjálpartækið var hjólastólahjól sem fjölskyldan fann í Hollandi árið 2013. Með hjálp vina og góðra manna var hjólið flutt til Íslands, endurbætt og bætt við það rafmótor. Áhugi fólks kviknaði strax, því enginn var þá að flytja inn sambærileg hjálpartæki. „Ástríðan fyrir hreyfanleika og lausnum sem gera lífið léttara varð að hugmyndafræði Mobility,“ segir Sigurður. „Nokkrum árum síðar hófum við að flytja inn þríhjól frá Van Raam í Hollandi og úr því varð fyrirtækið Mobility ehf.“ Mobility styður jafnframt við AHC samtökin, sem vinna að rannsóknum og meðferðarlausnum fyrir sjúkdóminn Alternating Hemiplegia of Childhood. AHC Samtökin framleiddu meðal annars heimildarmyndina Human Timebombs, sem hefur verið sýnd víða um heim og notuð sem kennsluefni í háskólum í Evrópu og USA. Fjölbreytt úrval sem auðveldar daglegt líf „Mobility er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands, þannig að viðskiptavinir geta fengið mörg hjálpartæki niðurgreidd,“ útskýrir Sigurður. Auk stærri hjálpartækja býður fyrirtækið upp á fjölmörg smærri tæki eins og magnara fyrir heyrnarskerta, lyfjabox, blóðþrýstingsmæla, einfaldar fjarstýringar og margt fleira. Flestar vörurnar sem Mobility býður upp á eru frá þekktum framleiðendum með áratuga reynslu. Hægt að leigja tæki tímabundið Einnig býður Mobility upp á hjálpartækjaleigu þar sem hægt er að leigja hjólastóla, rafskutlur eða önnur tæki til skemmri eða lengri tíma. Sigurður segir segir fólk til dæmis nýta sér að geta leigt tæki til þess að geta farið í ferðalög. Hann segir alltaf hægt að finna lausn sem hentar. „Við erum sérlega lausnamiðuð og leggjum okkur fram um að veita persónulega þjónustu og leysa vel úr þörfum hvers og eins viðskiptavinar.“ Vöxtur og framtíðarsýn Mobility hóf starfsemi í litlu iðnaðarhúsnæði í Mosfellsbæ, en eftir mikinn vöxt og aukna eftirspurn flutti fyrirtækið í glæsilegan sýningarsal í Urriðaholti sumarið 2022. Í dag býður Mobility upp á flestar lausnir fyrir hreyfiskerta og leggur sérstaka áherslu á nýjungar og frumlegar vörur sem stuðla að sjálfstæði og betra lífi. Hægt er að finna allar vörur á heimasíðunni www.mobility.is
Heilsa Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl