Fíaskó Svía ætlar engan endi að taka Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2025 21:12 Liverpool-framherjinn Alexander Isak náði ekki að redda Svíum. Getty/Mateusz Slodkowski Svíar, með stjörnuframherjana Alexander Isak og Viktor Gyökeres í fremstu víglínu, töpuðu í annað sinn á rúmum mánuði fyrir Kósovó í kvöld, aftur án þess að skora mark, og hafa svo gott sem kastað HM-draumnum á glæ.
Svíþjóð tapaði 2-0 á útivelli gegn Kósovó í síðasta mánuði og var því lýst sem algjöru hneyksli, og kallað eftir því að Jon Dahl Tomasson yrði rekinn sem landsliðsþjálfari. Svíar töpuðu svo á heimavelli gegn Kósovó í kvöld, 1-0, og má ætla að Tomasson endist ekki mikið lengur í starfi. Fisnik Asllani skoraði sigurmarkið á 32. mínútu. Í hinum leiknum í B-riðli gerðu Slóvenía og Sviss markalaust jafntefli. Sviss er því efst í riðlinum þegar tvær umferðir eru eftir, með 10 stig. Kósovó er með 7 stig, Slóvenía 3 og Svíþjóð 1. Woltemade tryggði Þýskalandi sigur Newcastle-framherjinn Nick Woltemade er áfram í stuði og skoraði sigurmark Þýskalands gegn Norður-Írlandi, í 1-0 sigri á útivelli. Slóvakía vann Lúxemborg 2-0 í sama riðli. Þýskaland og Slóvakía eru efst með 9 stig hvort en Norður-Írland með 6 og Lúxemborg 0. Mikilvægur sigur Belga Í J-riðli vann Belgía mikilvægan 4-2 útisigur gegn Wales þar sem Kevin De Bruyne skoraði tvö mörk. Norður-Makedónía og Kasakstan gerðu 1-1 jafntefli. Belgía er nú efst í riðlinum með 14 stig, Norður-Makedónía með 13 og Wales með 10, en Norður-Makedónía á aðeins einn leik eftir og hin tvo. Efsta lið hvers riðils kemst beint á HM en liðið í 2. sæti fer í umspil.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira