Skúrir og áfram milt í veðri Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2025 07:10 Hiti verður á bilinu sex til fjórtán stig. Vísir/Anton Brink Lægð vestur af landinu beinir suðlægum áttum yfir landið í dag og má reikna með sunnan og suðvestan golu og skúrum, en bjartviðri norðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði áfram milt í veðri þar sem hiti verður á bilinu sex til fjórtán stig og hlýjast á Norðausturlandi. „Fremur hæg austlæg átt á morgun og víða bjart, en stöku skúrir sunnantil. Djúp lægð úr suðri nálgast Austurland annað kvöld með norðlægum áttum, og mun þá þykkna upp og bæta í vind fyrir austan. Útlit er fyrir að það verði orðið talsvert hvasst á Austur- og Suðausturlandi á laugardagsmorgun, er lægðin nálgast ströndina. Síðdegis heldur lægðin leið sína í austur frá landi og mun þá draga úr vindi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt og stöku skúrir sunnan- og vestantil, en yfirleitt bjart fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig. Vaxandi norðanátt um kvöldið og þykknar upp. Á laugardag: Norðvestan 8-18 m/s, hvassast austast, en hægari norðvestantil. Víða væta en yfirleitt en bjart og þurrt að kalla vestan- og suðvestanlands. Hiti 2 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Á sunnudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10, en NA-lægari á Vestfjörðum. Úrkoma í flestum landshlutum, en þurrt að kalla norðaustantil. Kólnar í veðri. Á mánudag: Útlit fyrir norðvestlæga átt með slyddu eða rigningu, en snjókomu til fjalla. Þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn, en allvíða næturfrost. Á þriðjudag: Norðvestlæg átt, en lægir síðdegis og léttir víða til. Áfram svalt. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestan strekking og úrkomu vestantil er líða fer á daginn. Hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Sjá meira