„Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. september 2025 21:31 Fred skoraði tvö í kvöld. Vísir/Hulda Margrét „Tilfinningin er góð og loksins náði ég að skora,“ sagði hetja Framara, Fred, eftir 2-0 sigur liðsins gegn Val í kvöld.
Fred skoraði bæði mörk Fram í sigri kvöldsins, en þetta voru hans fyrstu mörk á tímabilinu. „Ég er ekki búinn að vera að hugsa um mörk og stoðsendingar þetta tímabilið. Ég er bara búinn að vera að hugsa um að hjálpa liðinu og ég er ánægður með að við höfum náð að lenda í efri hlutanum í fyrsta skipti eftir öll þessi ár í 1. deild. Ég er bara ánægður fyrir hönd liðsins og ánægður með baráttuna. Við sýndum að við getum spilað við þessi stærri lið og það er það sem við viljum gera. Svo var ég auðvitað ánægður með að ná að skora tvö mörk á móti einu af þessum stóru liðum.“ Það kemur líklega mörgum á óvart að Fred hafi ekki verið búinn að skora eitt einasta mark á tímabilinu, og sjálfur segist hann ekki hafa neina sérstaka skýringu á því af hverju það hefur ekki gengið hjá honum að finna netið. „Ég veit það ekki. Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora, en ég held að það hafi oft bara verið óheppni.“ „Ég bjóst svo ekkert endilega við því að bæta öðru við, en fékk þarna færi og lét vaða. Ég æfi þetta mikið og var mjög ánægður að ná að skora.“ Þá segir hann að sigurinn í kvöld hafi verið verðskuldaður. „Já, mér fannst það. Mér fannst við skapa góð færi og við börðumst vel. Þeir fengu sín færi eftir hornspyrnur og annað þar sem mér fannst vindurinn hjálpa þeim, en ég held að við höfum átt skilið að vinna.“ Hann segir einnig að leikmenn hafi lært af síðasta tímabili þar sem liðið virtist slökkva á sér eftir að deildinni var skipt upp og ljóst að Fram hafði að engu að keppa. „Það var erfitt á síðasta tímabili að vera ekki að keppa um neitt. Við vorum öruggir með að falla ekki, en nú er þetta öðruvísi. Það er öðruvísi að vera í efri hlutanum og keppa við bestu liðin.“
Besta deild karla Fram Valur Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Sjá meira