Gylfi skoraði í eina sigri Everton á Anfield á þessari öld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. september 2025 11:32 Ricarlison og Abdoulaye Doucouré fagna með Gylfa Þór Sigurðssyni eftir að hann skoraði seinna mark Everton í sigri á Liverpool á Anfield í febrúar 2021. getty/Laurence Griffiths Everton sækir Liverpool heim í Bítlaborgarslag í ensku úrvalsdeildinni á morgun. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, á ekki góðar minningar frá Anfield.
Moyes hefur nefnilega aldrei stýrt liði til sigurs á Anfield, í 22 leikjum. Fimmtán þeirra hafa tapast og sjö endað með jafntefli. Hann hefur þrettán sinnum stýrt Everton á Anfield en á enn eftir að fagna sigri á vellinum. Moyes stýrði Everton á árunum 2002-13 og tók svo aftur við liðinu í byrjun þessa árs. Það er ekki bara Moyes sem hefur gengið illa á Anfield heldur hefur Everton aðeins unnið einn leik á vellinum á þessari öld. Það var undir stjórn Carlos Ancelotti 20. febrúar 2021, í miðjum kórónuveirufaraldrinum. Richarlison kom Everton yfir strax á 3. mínútu. Sjö mínútum fyrir leikslok gulltryggði Gylfi Þór Sigurðsson svo sigur liðsins með marki úr vítaspyrnu. Þetta var eitt af 31 marki Gylfa fyrir Everton og eitt 67 marka hans í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi kunni alltaf vel við sig á Anfield en öll fimm mörk hans gegn Liverpool komu á vellinum sögufræga. Chelsea og Tottenham eru einu tvö liðin sem Gylfi hefur skorað fleiri mörk gegn á ferlinum, eða sex gegn hvoru liði. Liverpool var ekki á góðum stað í febrúar 2021. Tapið gegn Everton var fjórða deildartap liðsins í röð og meistararnir voru aðeins með fjörutíu stig eftir 25 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Liðið endaði hins vegar tímabilið vel og lauk keppni í 3. sæti. Sigur Everton fyrir fjórum árum var fyrsti sigur liðsins í 23 leikjum á Anfield, eða síðan 27. september 1999. Everton vann þá 0-1 sigur með marki Kevins Campbell heitins. Liverpool er með fullt hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir fjórar umferðir en Everton er í 6. sæti með sjö stig. Leikur Liverpool og Everton hefst klukkan 11:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 11:00.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjá meira