Dálítil rigning og lægðir á sveimi Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2025 07:06 Það verður lengst af bjart suðvestanlands, þar sem hiti getur farið í sextán stig. Vísir/Vilhelm Lægðir eru á sveimi í kringum Ísland í dag og verður áttin áfram norðaustlæg – stekkingur á Vestfjörðum en annars hægari.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning eða súld með köflum fyrripart dags, en rigning seinnipartinn fyrir norðan. Sunnan heiða verði úrkomulítið í dag og lengst af bjart suðvestanlands, þar sem hiti getur farið í sextán stig. „Í kvöld hvessir á Vestfjörðum, þar verður norðaustan hvassviðri í nótt. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Norðaustlæg átt á morgun, 8-15 en hægari fyrir austan. Víða rigning eða skúrir. Hiti 7 til 14 stig, en heldur svalara á Vestfjörðum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 5-10 m/s, en norðaustan 10-15 norðvestantil. Rigning eða skúrir, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Hiti 7 til 14 stig, en heldur svalara á Vestfjörðum. Á sunnudag: Austan og norðaustan 5-13 og rigning, en úrkomuminna fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað og smá súld austanlands, en léttir til um landið vestanvert. Hiti 7 til 13 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustlæg átt, skýjað og dálítil væta af og til í flestum landshlutum. Kólnar smám saman í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt, skýjað með köflum en úrkomulítið. Hiti 4 til 10 stig.
Veður Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Sjá meira