Eiga von á breytingum og þyngri miðju gegn Frökkum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. september 2025 13:00 Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson rýnir í gögnin. vísir/anton Þeir Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason eiga von á því að Arnar Gunnlaugsson gerir breytingar á byrjunarliði íslenska karlalandsliðsins fyrir leikinn gegn Frakklandi á þriðjudaginn.
Ísland hóf undankeppni HM 2026 með stórsigri á Aserbaísjan á Laugardalsvelli í gær, 5-0. Þetta er stærsti sigur Íslendinga á heimavelli í keppnisleik í sögunni. Ljóst er að Arnar þarf að gera allavega eina breytingu á byrjunarliðinu því Albert Guðmundsson meiddist er hann skoraði fjórða mark Íslands gegn Aserbaísjan og verður ekki með gegn Frakklandi á þriðjudaginn. Þeir Bjarni og Kári búast við að Arnar tefli fram breyttri miðju gegn Frakklandi en hann gerði gegn Aserbaísjan. Gera ráð fyrir Hákoni á kantinum „Við tölum oft um að þyngja liðin, að vera með varnarsinnaðra lið. Gísli Gotti [Þórðarson] gæti alveg komið inn í liðið. Við gætum verið með tvær sexur og aðra áttu þar fyrir framan þannig þú ert að spila með þéttari miðju,“ sagði Bjarni er þeir Kári og Kjartan Atli Kjartansson gerðu leikinn gegn Aserbaísjan upp í gær. „Ég tek undir það,“ sagði Kári. „Ég myndi alltaf setja Hákon [Arnar Haraldsson] út á kant og vera með þyngri miðju sem getur unnið boltann og unnið skallaeinvígi og einvígi yfirhöfuð og láta Jón Dag [Þorsteinsson] og Hákon sjá um kantana. Svo þarftu bara mann sem getur haldið bolta frammi og það er Andri Lucas [Guðjohnsen] fyrir okkur í dag. Þannig myndi ég gera þetta.“ Klippa: Umræða um breytingar fyrir Frakkaleikinn Guðlaugur Victor Pálsson, sem kom Íslandi á bragðið í uppbótartíma fyrri hálfleiks, kenndi sér einhvers meins undir lok leiksins í gær og Kári sagði mikilvægt að hann yrði klár í leikinn gegn Frakklandi. Verður strembinn leikur Á sama tíma og Íslendingar rúlluðu yfir Asera unnu Frakkar Úkraínumenn, 0-2. Didier Deschamps, þjálfari franska liðsins, tefldi fram ógnarsnöggri framlínu í gær; Kylian Mbappé, Désiré Doué og Bradley Barcola. „Ef þessir leikmenn fá tíma og pláss og ég tala nú ekki um svæði fyrir aftan vörnina ertu strax lentur í vandræðum því þar fyrir aftan er allt stútfullt af hæfileikaríkum fótboltamönnum sem geta sent boltann og sent hann á réttu tempói og svo framvegis þannig að þetta verður strembinn leikur,“ sagði Bjarni. Ísland hefur aldrei unnið Frakkland í A-landsleik í karlaflokki en liðin hafa fjórum sinnum skilið jöfn. Umræðuna um leikinn gegn Frökkum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir Stærsti heimasigur Íslands í keppnisleik Sigur Íslands á Aserbaísjan í undankeppni HM 2026 í gær var stærsti sigur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á heimavelli í keppnisleik. 6. september 2025 11:03 „Eitt fallegasta mark sem Ísland hefur skorað“ Þeir Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson hrifust mjög af þriðja marki íslenska karlalandsliðsins gegn Aserbaísjan í gær. 6. september 2025 10:02 Stærsti sigur Íslands ekki gegn smáþjóð Það er ekki á hverjum degi sem íslenska landsliðið skorar fimm mörk í leik. Ísland lagði Aserbaísjan í gærkvöldi með fimm mörkum gegn engu en þetta var aðeins áttundi leikurinn í sögu landsliðsins þar sem liðið skorar fimm mörk eða fleiri. 6. september 2025 09:03 Myndasyrpa: Frábært kvöld í Laugardalnum Ísland vann frábæran 5-0 sigur á Aserbaísjan á Laugardalsvelli í gærkvöldi en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM '26. 6. september 2025 08:02 Þjarmað að Santos á blaðamannafundi eftir leik Þjálfari Aserbaísjan, Portúgalinn Fernando Santos, sat fyrir svörum blaðamanna eftir tap hans manna í kvöld. Það er óhætt að segja að aserskum blaðamönnum hafi hitnað í hamsi þegar þeir fengu tækifæri til að spyrja hann spjörunum úr. 5. september 2025 21:54 Uppgjörið: Ísland - Aserbaísjan 5-0 | Algjör einstefna í seinni hálfleik Íslenska karlalandsliðið lagði Aserbaísjan 5-0 í stórleik í kvöld í undankeppni HM á Laugardalsvelli. Eftir rólega byrjun umturnaðist leikurinn í seinni hálfleik sem endaði með sannkallaðri markaveislu. 5. september 2025 17:17 „Fallegt að koma inn á fyrir bróður“ Daníel Tristan Guðjohnsen spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld þegar hann kom inn á fyrir bróður sinn Andra Lucas. Stór stund fyrir Guðjohnsen fjölskylduna og þjóðina alla. 5. september 2025 22:09 „Fyrri hálfleikurinn lagði grunninn“ Arnar Gunnlaugsson var gríðarlega ánægður með sinn fyrsta leik sem þjálfari á Laugardalsvelli. Enda ærin ástæða til eftir fimm marka sigur, algjört burst gegn Aserbaísjan í fyrsta leiknum í undankeppni HM. Hann segir fyrri hálfleikinn hafa lagt grunninn að góðum sigri. 5. september 2025 21:52 Ísak Bergmann: Stoltur af þjóðinni í kvöld Ísak Bergmann Jóhannesson var gripinn í viðtal strax eftir sigurinn gegn Aserbaísjan í kvöld. Hann skoraði tvö mörk í 5-0 sigri og var einn af betri mönnum vallarins. Ísland byrjar undankeppni HM ´26 eins vel og hægt er. 5. september 2025 21:00 „Héldum áfram og drápum leikinn“ Hákon Arnar Haraldsson bar fyrirliðabandið í fyrsta sinn í keppnisleik fyrir Íslands hönd í kvöld er liðið lagði Aserbaíjsan 5-0 á Laugardalsvelli. Hákon Arnar spilaði allan leikinn og var stoltur af liðinu eftir leikinn. 5. september 2025 21:43 „Fagnið var fyrir mömmu og pabba“ Ísland burstaði Aserbaíjsan 5-0 í undankeppni HM í kvöld. Liðið setti í sjötta gír í seinni hálfleik og var með öll völd á vellinum. Eftir hæga byrjun virtist Guðlaugur Victor Pálsson kveikja í liðinu með marki rétt fyrir hálfleik. 5. september 2025 21:51 Einkunnagjöf íslenska landsliðsins: Albert maður leiksins Ísland tók á móti Aserbaísjan í fyrstu umferð forkeppni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada á næsta ári. Leikurinn fór 5-0 fyrir Ísland en eftir leiðinlegan fyrri hálfleik var afturbrennarinn settur í gang í þeim seinni og verkefnið klárað með sóma. 5. september 2025 20:42 Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fótbolti Fleiri fréttir „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Sjá meira
Stærsti heimasigur Íslands í keppnisleik Sigur Íslands á Aserbaísjan í undankeppni HM 2026 í gær var stærsti sigur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á heimavelli í keppnisleik. 6. september 2025 11:03
„Eitt fallegasta mark sem Ísland hefur skorað“ Þeir Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson hrifust mjög af þriðja marki íslenska karlalandsliðsins gegn Aserbaísjan í gær. 6. september 2025 10:02
Stærsti sigur Íslands ekki gegn smáþjóð Það er ekki á hverjum degi sem íslenska landsliðið skorar fimm mörk í leik. Ísland lagði Aserbaísjan í gærkvöldi með fimm mörkum gegn engu en þetta var aðeins áttundi leikurinn í sögu landsliðsins þar sem liðið skorar fimm mörk eða fleiri. 6. september 2025 09:03
Myndasyrpa: Frábært kvöld í Laugardalnum Ísland vann frábæran 5-0 sigur á Aserbaísjan á Laugardalsvelli í gærkvöldi en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM '26. 6. september 2025 08:02
Þjarmað að Santos á blaðamannafundi eftir leik Þjálfari Aserbaísjan, Portúgalinn Fernando Santos, sat fyrir svörum blaðamanna eftir tap hans manna í kvöld. Það er óhætt að segja að aserskum blaðamönnum hafi hitnað í hamsi þegar þeir fengu tækifæri til að spyrja hann spjörunum úr. 5. september 2025 21:54
Uppgjörið: Ísland - Aserbaísjan 5-0 | Algjör einstefna í seinni hálfleik Íslenska karlalandsliðið lagði Aserbaísjan 5-0 í stórleik í kvöld í undankeppni HM á Laugardalsvelli. Eftir rólega byrjun umturnaðist leikurinn í seinni hálfleik sem endaði með sannkallaðri markaveislu. 5. september 2025 17:17
„Fallegt að koma inn á fyrir bróður“ Daníel Tristan Guðjohnsen spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld þegar hann kom inn á fyrir bróður sinn Andra Lucas. Stór stund fyrir Guðjohnsen fjölskylduna og þjóðina alla. 5. september 2025 22:09
„Fyrri hálfleikurinn lagði grunninn“ Arnar Gunnlaugsson var gríðarlega ánægður með sinn fyrsta leik sem þjálfari á Laugardalsvelli. Enda ærin ástæða til eftir fimm marka sigur, algjört burst gegn Aserbaísjan í fyrsta leiknum í undankeppni HM. Hann segir fyrri hálfleikinn hafa lagt grunninn að góðum sigri. 5. september 2025 21:52
Ísak Bergmann: Stoltur af þjóðinni í kvöld Ísak Bergmann Jóhannesson var gripinn í viðtal strax eftir sigurinn gegn Aserbaísjan í kvöld. Hann skoraði tvö mörk í 5-0 sigri og var einn af betri mönnum vallarins. Ísland byrjar undankeppni HM ´26 eins vel og hægt er. 5. september 2025 21:00
„Héldum áfram og drápum leikinn“ Hákon Arnar Haraldsson bar fyrirliðabandið í fyrsta sinn í keppnisleik fyrir Íslands hönd í kvöld er liðið lagði Aserbaíjsan 5-0 á Laugardalsvelli. Hákon Arnar spilaði allan leikinn og var stoltur af liðinu eftir leikinn. 5. september 2025 21:43
„Fagnið var fyrir mömmu og pabba“ Ísland burstaði Aserbaíjsan 5-0 í undankeppni HM í kvöld. Liðið setti í sjötta gír í seinni hálfleik og var með öll völd á vellinum. Eftir hæga byrjun virtist Guðlaugur Victor Pálsson kveikja í liðinu með marki rétt fyrir hálfleik. 5. september 2025 21:51
Einkunnagjöf íslenska landsliðsins: Albert maður leiksins Ísland tók á móti Aserbaísjan í fyrstu umferð forkeppni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada á næsta ári. Leikurinn fór 5-0 fyrir Ísland en eftir leiðinlegan fyrri hálfleik var afturbrennarinn settur í gang í þeim seinni og verkefnið klárað með sóma. 5. september 2025 20:42