„Taugalaus“ Óðinn með þrettán mörk Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2025 19:24 Óðinn Þór Ríkharðsson var rosalegur í kvöld, eins og reyndar oft áður. Vísir/Vilhelm Óðinn Þór Ríkharðsson var hreint ótrúlegur í grannaslag í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. „Taugalausi maðurinn“, eins og hann er kallaður á samfélagsmiðlum Kadetten Schaffhausen, skoraði 13 mörk úr 14 skotum fyrir liðið í kvöld. Í Noregi var ójafn Íslendingaslagur.
Kadetten vann sætan sigur á grönnum sínum frá Pfadi Winterthur, 33-30, eftir að hafa verið 15-13 undir í hálfleik. Óðinn Þór Ríkharðsson var kallaður taugalausi maðurinn, á Instagram hjá Kadetten Schaffhausen.Skjáskot/@kadettensh Þegar sex mínútur voru eftir hafði Kadetten náð að komast yfir, 29-28, og Óðinn var með boltann á vítalínunni. Kadetten sýndi frá vítakasti hans á Instagram, og kallaði hornamanninn taugalausan, enda skoraði hann úr öllum átta vítum sínum í kvöld. Óðoinn var auðvitað langmarkahæstur í leiknum með sín 13 mörk en næstur á eftir honum kom Luka Maros með átta mörk. Tryggvi fagnaði risasigri gegn Degi Í Noregi var Íslendingaslagur þegar Elverum vann risasigur gegn Arendal á útivelli, 37-18, eftir að hafa verið níu mörkum yfir í hálfleik, 18-9. Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson er nú leikmaður Elverum, eftir að hafa komið frá Svíþjóð í sumar, og var með í kvöld en þó ekki einn af markaskorurunum. Hjá Arendal var Dagur Gautason einn af markahæstu mönnunum með fjögur mörk. Dagur er mættur aftur til Arendal eftir að hafa farið til franska stórliðsins Montpellier og spilað þar seinni hluta síðustu leiktíðar.
Norski handboltinn Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira