Að minnsta kosti fjórtánhundrað látnir í Afganistan Samúel Karl Ólason skrifar 2. september 2025 11:14 Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna telja að raunverulegur fjöldi látinna sé mun hærri en 1.400 og jafnvel margfalt hærri. AP/Wahidullah Kaka Talsmaður Talibana í Afganistan segir að búið sé að staðfesta að fjöldi látinna vegna kröftugs jarðskjálfta sem varð á sunnudaginn sé kominn yfir 1.400. Búist er við því að fjöldinn muni hækka enn frekar en rúmlega þrjú þúsund eru sagðir slasaðir.
Fólk var sofandi þegar skjálftinn skall á. Húsin í þeim héruðum Austur-Afganistan þar sem skjálftinn á sér upptök eru að miklu leyti smíðuð úr leir og timbri og hrundu í mörgum tilfellum ofan á sofandi fólk. Heilu þorpin eru sögð hafa hrunið og er enn talið að fjöldi fólks sitji fast í rústum. AP fréttaveitan hefur eftir starfsmanni Sameinuðu þjóðanna að fjöldi látinna sé líklega mun hærri, og möguleg margfalt hærri, en búið sé að staðfesta. Björgunarstarf hefur víða gengið verulega hægt en viðbragðssveitum hefur gengið ill að ná til margra afskekktra byggða um urðu illa úti í skjálftanum, sem var sex að stærð. Honum fylgdu svo nokkrir öflugir skjálftar. Heilu þorpin eru sögð hafa hrunið í jarðskjálftanum.AP/Wahidullah Kakar Leiðtogar Talibana, sem eru eingöngu viðurkenndir af yfirvöldum í Rússlandi, hafa kallað eftir aðstoð frá Alþjóðasamfélaginu og hafa Sameinuðu þjóðirnar ítrekað það ákall. Í samtali við AP segir sérstakur starfsmaður SÞ gagnvart Afganistan að ekki megi gleyma íbúum landsins. Þeir glími nú við margskonar krísur. Sjá einnig: Talíbanar óska eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins Þetta er þriðji stóri og mannskæði jarðskjálftinn sem skekur landið frá því Talibanar tóku þar aftur völd árið 2021. Hagkerfi ríkisins er mjög veikburða og verulega hefur verið dregið úr neyðaraðstoð til landsins á undanförnum árum.
Afganistan Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Sjá meira