Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Jón Ísak Ragnarsson skrifar 22. júlí 2025 07:38 Brúin skóf þakið af rútunni. Tveggja hæða rútu var ekið á brú í Manchester í gær með þeim afleiðingum að þakið brotnaði af og minnst fimmtán farþegar fóru á spítala.
Í myndbandi frá dyrabjöllumyndavélakerfi sést þegar rútunni var ekið undir of lága brú sem skefur allt þakið af og skilur það eftir í bútum á götunni. Lögregla, sjúkraliðar, þyrla og tíu sjúkrabílar voru kallaðir á vettvang, og lýst var yfir neyðarástandi um skamma stund. Þrír eru alvarlega særðir eftir slysið, en fimmtán eru á spítala og allt að sautján hlutu einhver meiðsl. Í ljós hefur komið að rútan var ekki á sinni hefðbundnu leið. School bus crash in Eccles Salford this afternoon . Distressing 🙏 pic.twitter.com/niy0pOagEk— MBK (@kiernanmb) July 21, 2025 Vernon Everitt, sem fer fyrir rannsókn málsins hjá lögregluyfirvöldum í Manchester, segir að hugurinn sé fyrst og fremst hjá þeim sem voru í rútunni. „Við gerðum allt sem við gátum til að styðja við sjúkraliða á vettvangi, sumir fengu aðhlynningu á staðnum og aðrir voru sendir á spítala.“ „Rannsókn málsins er hafin og við vinnum náið með rannsóknarteymi lögreglunnar á Manchestersvæðinu og rútufyrirtækinu Stagecoach,“ segir Vernon við Telegraph. Árið 2023 keyrði önnur tveggja hæða rúta undir sömu brú með svipuðum afleiðingum, en þá voru engir farþegar um borð. Önnur tveggja hæða rúta keyrði undir brúna 2020 og þá slösuðust þrír sem voru í rútunni.
England Bretland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira