Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson skrifar 12. júní 2025 07:00 „Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna norðanáhlaups.“ Svo sagði í fréttum RÚV á mánudag í síðustu viku. Eftir einn blíðasta maímánuð í manna minnum kipptu appelsínugular veðurviðvaranir Íslendingum harkalega niður á jörðina og minntu á að við búum í landi vályndra veðra. Rauðar viðvaranir Daginn fyrir tilkynningu almannavarna skutu ísraelskir hermenn af handahófi hið minnsta 30 Palestínumenn til bana sem höfðu ekkert sér til saka unnið annað en að gera tilraun til að ná í örlitlar matarbirgðir á einni af svokölluðum dreifingarstöðvum hjálpargagna, sem settar hafa verið upp af bandarískum „hjálparsamtökum“ á Gaza. Þeim var slátrað án nokkurrar viðvörunar, ekki einu sinni blóðrauðrar, eftir margra mánaða svelti af hendi árásarhersins. Þessar „hjálparstöðvar“ hafa verið harðlega gagnrýndar af Sameinuðu þjóðunum og hér um bil öllum alþjóðasamtökum, sem neita að taka þátt í þeim sýndaraðgerðum sem þar fara fram. Með fyrirkomulagi þeirra eru sveltir íbúar neyddir til að ganga langar leiðir inn á lífshættuleg yfirráðasvæði Ísraelshers. Þannig er komið í veg fyrir að straumlínulöguð aðstoð hlutlausra hjálparsamtaka sem sérhæfð eru í dreifingu hjálpargagna, berist beint til allra íbúa Gaza, sérstaklega þeirra berskjölduðustu á norðurhluta svæðisins. Íbúar á Gaza hafa í ótal póstum og myndböndum á samfélagsmiðlum lýst „hjálparstöðvunum“ sem gildrum, líkt og settum upp til að lokka svelta íbúa inn á svæði þar sem hægt er að veita þeim fyrirsát, skjóta á og drepa í tuga tali. Fréttir af slíkum árásum berast á hverjum degi. Gazabúum var svo sannarlega ekki kippt niður á jörðina með appelsínugulum viðvörunum eftir blíðu síðustu vikna. Þeir fá engar viðvaranir. Ég efast ekki um að fleirum en mér hafi verið hugsað til áhlaupa og fjöldamorða Ísraela á örvæntingarfullum íbúum Gaza þegar varað var við norðanáhlaupinu í veðurfréttum hér á Íslandi. Náttúruhamfarir og manngerðar hamfarir Íslendingar eiga í stöðugu sambandi við duttlungafulla náttúruna og hamfarir hennar. Margir hafa aldrei beðið þeirrar glímu bætur. Íbúar á Gaza og á Vesturbakkanum búa hins vegar við yfirstandandi og þaulskipulagðar hamfarir af mannavöldum. Þar eru engin náttúruöfl að verki heldur gengur árásarþjóð berserksgang og stundar hernaðarleg áhlaup af fullkomlega andstæðum toga við þau náttúrulegu áhlaup sem við þurfum að takast á við hér á Íslandi. Enginn íbúi Gaza mun nokkurn tíma bíða þessara hamfara bætur. Palestínubúar alast upp við stanslausar ógnir frá ísraelskum hermönnum sem aldir eru upp við og þjálfaðir til að líta ekki á nágranna sína sem manneskjur af holdi og blóði. Líkt og íbúar Gaza birta umheiminum myndir af hörmungunum sem þeir ganga í gegnum, birta stoltir ísraelskir hermenn myndir af sér við óhæfuverk sem ekki verða flokkuð öðruvísi en forhertir stríðsglæpir. Þegar hversdagurinn verður óbærilegur Ekkert okkar sem lifað höfum ævilangt við frið á Íslandi kemst nálægt því að ímynda sér sársaukann og þá afmennskun sem íbúar Gaza hafa upplifað af hálfu Ísraela síðustu 19 mánuði (og í marga áratugi fyrir það, einnig á Vesturbakkanum). Ástvinamissir, mannshvörf, flótti og skeytingarlaus tilflutningur af hálfu Ísraelshers, stöðugur ótti við sprengingar og árásir, hungur, dauði og jarðarfarir hvert sem litið er. Allt er þetta nú hversdagur Palestínumanna á Gaza, fullorðinna sem og barna, sem berjast fyrir lífi sínu öllum stundum. Ofan á allt þetta leggst sú upplifun að heimsbyggðinni láti þessar ólýsanlegu hörmungar sig engu varða. Stórum hluta almennings víða um lönd ofbýður svo sannarlega morðæði ísraelskra stjórnvalda, afar fjölmennar mótmælagöngur um allan heim sýna það skýrt. En yfirvöld vestrænna þjóða láta slíkt sem vind um eyru þjóta og aðhafast ekkert sem skiptir raunverulega máli. Þeir hugrökku aktívistar sem sigldu á skútunni Madleen til Gaza til að sýna Palestínumönnum samstöðu og samhygð var bókstaflega rænt af ísraelska hernum á alþjóðlegu hafsvæði, nánast án nokkurra athugasemda frá stjórnvöldum heimalanda þeirra eða annarra ríkja. Sá hluti heimsbyggðarinnar sem enn hefur andlegt þrek og getu til að fylgjast með fréttum frá Gaza (því eðlilega megnum við ekki öll að fylgjast með gegndarlausu þjóðarmorðinu alla daga) speglar eigin hversdagsleika í örlögum Gazabúa – hver munnbiti kallar fram í hugann hungursneyðina á Gaza, bros barns minnir á brostna drauma palestínskra barna, rúmið, íbúðin og stórmarkaðirnir – allt undirstrikar þetta þau forréttindi að búa við frið og ríkidæmi. Francesca Albanese, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, sagði fyrir nokkrum vikum að hún gæti ekki lengur horft á eld án þess að verða óglatt – hún hefði séð svo margar myndir af börnum brenna lifandi í húsarústum eftir árásir ísraelska hersins. Um leið bað hún þess að Palestínumenn fyrirgæfu umheiminum að hafa brugðist þeim. Hugleysi íslenskra stjórnvalda Þegar almenningur er jafnvel hættur að geta hlustað á veðurfréttir, lesa barnabækur og upplifa áhyggjulausan hversdaginn án þess að hugsa um þjóðarmorð á Gaza, er þá ekki kominn tími fyrir stjórnvöld til að grípa til harðra aðgerða gegn fjöldamorðingjunum? Eftir hverju bíður íslenska ríkisstjórnin? Að ísraelsk stjórnvöld nái endanlega að útrýma palestínsku þjóðinni eða að íslenskur almenningur gefist loks upp, verði samdauna hryllingsmyndunum frá Gaza og hætti að trufla stjórnvöld í athafnaleysi sínu? Á fyrstu hundrað dögum nýja stjórnarmeirihlutans á Alþingi virðist enginn stjórnarþingmaður hafa minnst af alvöru á hörmungar Palestínumanna í pontu. Í byrjun apríl benti Fida Abu Libdeh á þessa ærandi þögn nýju ríkisstjórnarinnar sem segist vera „verkstjórn“ en hefur vart lyft litla fingri til varnar þjóð sem verið er að þurrka út. Viku síðar hélt Sigmundur Ernir Rúnarsson þrumandi ræðu um þjóðarmorðið en síðan þá hefur þingmeirihlutinn haft fátt fram að færa nema innantóm orð og aðgerðaleysi þótt örfáir þingmenn hafi tekið ögn við sér og látið í sér heyra á síðustu vikum. Ráðherrar umla í besta falli eitthvað óljóst um samtal vestrænna þjóða og aðgerðir sem ekkert bólar á. Fylgjast íslensk stjórnvöld raunverulega með því sem gerist á Gaza? Sjá þeir myndir þaðan og viðtöl við örmagna mæður og börn? Lesa þeir fréttir af heilbrigðisstarfsfólki, fréttamönnum og bráðaliðum sem myrtir eru með köldu blóði af ísraelska hernum á hverjum einasta degi? Telja íslenskir stjórnmálamenn sig bera einhverja ábyrgð á því að bregðast við fjöldamorðum Ísraelshers? Íslendingar eru sjálfstæð þjóð með eigin utanríkisstefnu og stjórnvöldum ber samkvæmt alþjóðalögum að grípa til allra mögulegra aðgerða palestínsku þjóðinni til varnar. Kæra ríkisstjórnarflokkarnir sig kollótta eða eru þingmenn þeirra og ráðherrar huglausir? Hversu mörg norðanáhlaup Ísraela á Gaza ætla íslensk stjórnvöld að fylgjast með í viðbót án aðgerða? Höfundur er jarðfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Sjá meira
„